Frumvarp innviðaráðherra til nýrra heildarlaga um sveitarfélög var lagt fram á þingi í mars. Meðal annars eru boðaðar breytingar á reglum sem gilda um samvinnu sveitarfélaga, en ráðherra hefur lýst yfir vilja til að fækka sveitarfélögum. Mikil óánægja er meðal sveitarfélaga á landsbyggðinni, sérstaklega þeirra sem smærri eru, um nýja frumvarpið. Tólf þeirra fengu til liðs við sig Guðjón Bragason, sérfræðing í sveitarstjórnarrétti, til þess að skila inn ítarlegri greinargerð um frumvarpið. Í henni er gagnrýnt að frumvarpið hafi verið unnið í flýti og beri þess merki að vilja torvelda tilvist fámennra sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa gagnrýnt að frumvarpið sé til þess fallið að flækja og þyngja samvinnu sveitarfélaga og eigi eftir að koma öllum illa, ekki aðeins smærri sveitarfélögum. Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps sagði við fréttastofu að hann teldi verið að þrýsta á smærri sveitarfélög til sameiningar. Sveitarstjóri Fljótsdalshrepps, Helgi Gíslason, tekur í svipaðan streng og segir frumvarpið einkennast af að taka eigi vald af sveitarfélögum vegna áforma ráðherra að fækka þeim. Þá er gagnrýnt að viðamiklar breytingar taki gildi strax. Frumvarpið fór til umsagnar í september og bárust 47 umsagnir. Frá því að það var kynnt í samráðsgátt í haust hefur verið fallið frá tillögu um lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum en enn er andstaða við áformin.