Innlent | mbl | 18.2.2026 | 18:00 Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Anna María Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, telur vantar öll úrræði inn í grunnskóla landsins. Ljósmynd/Reykjavíkurborg/Þroskahjálp Þroskahjálp telur ljóst að brotið hafi verið á réttindum drengs í fyrsta bekk í Háteigsskóla miðað við hvernig móðir drengsins hefur lýst aðstæðum drengsins í skólanum. Þetta segir Anna María Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, í samtali við mbl.is. Þroskahjálp hefur sent Reykjavíkurborg fyrirspurn vegna málsins og krefst svara um það hvernig réttur barns til menntunar og fullrar þátttöku í almennu skólastarfi sé tryggður í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar. Fjallað var um mál drengsins um helgina en móðir drengsins segir hann ítrekað hafa verið sendan heim snemma úr skólanum og að niðurstaða farteymis væri að rétt væri að senda hann heim snemma tvisvar í viku og oftar ef þörf krefðist, eitthvað sem móðirin segist mjög ósátt með. Frétt af mbl.is Telur skólann vera að bregðast syni sínum Haldist í hendur við umræðu gegn skóla án aðgreiningar Drengurinn, sem er sex ára gamall, er á einhverfurófi og er auk þess greindur með málþroskaröskun, ADHD og kvíða. Greininga sinna vegna ræður hann illa við að vera í stórum barnahópi og hefur ekki náð að fóta sig í skólanum. „Ef að málavextir eru þessir þá er það alveg ljóst að brotið hefur verið á réttindum barnsins. Það á að mæta þörfum barnanna í skólanum en ekki senda þau heim og velta ábyrgðinni yfir á foreldra,“ segir Anna María sem segir of mörg dæmi þess efnis að börn séu send heim ítrekað vegna úrræðaleysis í skólum. Segir Anna María dæmi sem þessi haldast í hendur við umræðu í samfélaginu gegn stefnu um skóla án aðgreiningar. „Það vantar öll úrræði inn í skólana. Það eru þó staðir þar sem þetta er vel gert. Við erum auðvitað ekki andsnúin Klettaskóla eða Arnarskóla fyrir börn sem þurfa á því að halda en almenna línan er sú að börn eigi að fá þá þjónustu sem þau eiga rétt á í sínum hverfisskólum.“ Brýn og afdráttarlaus verkefni Er Anna María þeirrar skoðunar að þörf sé á fleira fagfólki sem starfi innan grunnskóla. „Það eru alls konar úrræði sem eru þekkt og til dæmis þroskaþjálfar gætu beitt ef þeir væru starfandi í meiri mæli inn í skólunum.“ Telur Anna María jafnframt að umræðan í samfélaginu um réttindi barna sem glími við greiningar þurfi að fara breytast til hins betra. „Við þurfum að hætta tala um þetta eins og þetta séu einhver gæluverkefni sem megi vinna þegar við erum ekki blönk. Þetta er eins og ef ákveðið væri að enginn kennsla færi fram í tíunda bekk í ár vegna peningaleysis. Þetta er alveg galið og býr til það viðhorf að þetta séu ekki brýn og afdráttarlaus verkefni sem samfélagið þarf að sinna.“ Myndir: Danakonungur mættur til Grænlands Breiðablik - Häcken, staðan er 0:2 Þjóðverjinn mjög ósáttur á Englandi Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Tourists rescued after GPS leads them off route in North Iceland Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Ragnar Þór deilir ekki áhyggjunum Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Myndir: Danakonungur mættur til Grænlands Breiðablik - Häcken, staðan er 0:2 Þjóðverjinn mjög ósáttur á Englandi Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Tourists rescued after GPS leads them off route in North Iceland Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Veita undanþágur vegna líkbrennslu Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Ragnar Þór deilir ekki áhyggjunum Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi