- What: Former director of the Icelandic child welfare agency, Barnaverndarstofa, claims to have been unaware of abuse allegations at the Bakkakot foster home.
- Impact: Highlights potential systemic failures in oversight of foster care facilities and the need for increased funding to address shortcomings.
Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, heyrði fyrst af ofbeldi í garð fósturbarna á Bakkakoti í umfjöllun Kveiks á dögunum. Hann segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð þann tíma sem hann var forstjóri. Hann harmar atburðina og hvetur stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu. „Það veldur manni miklum sársauka að hlusta á þessar raunir sem þessir blessuðu dregnir gengu í gegnum. Það er ekkert öðruvísi,“ segir Bragi. Vissir þú af þessu á sínum tíma? „Ég vissi ekki um tilvist þessa heimilis einu sinni. Þetta er alveg gríðarlegt umfang. Þarna eru fósturheimili vel á annað hundrað líklega starfandi á þessum tíma og fjöldi barna í fóstri er hátt í 300.“ En það kemur samt fram hér í gögnum máls að þið mæltust til þess að húsfreyjan á Bakkakoti yrði kærð fyrir ofbeldi gegn Svavari Þór árið 2002 en það var ekki gert, hvers vegna? „Ég get ekki svarað því, ég vissi ekkert af þessu — að þetta hefði komið inn á borð starfsmanna Barnaverndarstofu. En er þá ekki eitthvað að á Barnaverndarstofu ef þú, forstjórinn, veist ekki að það stendur mögulega til að kæra húsfreyjuna fyrir ofbeldi í garð þeirra drengja sem hún hefur hjá sér í vistun? „Það þarf ekkert að vera.“ Af hverju ekki? „Af því að þetta er ekkert „one man show“ þetta barnaverndarkerfi.“ En þú ert ábyrgur, þú varst forstjórinn? „Já, já en mínir starfsmenn voru fullkomlega færir um að afgreiða málið á faglegan máta,“ segir Bragi, og heldur áfram. „Ábyrgðin hefur alltaf verið á veikbyggðum sveitarfélögum og fjármagnið sem hefur verið lagt í þetta, bæði af hálfu ríkis og sveitarfélaga, er sáralítið og starfsfólkið er þjakað af vinnuálagi og býr við mjög erfiðar aðstæður og hefur gert það mjög lengi, allt of mikinn málafjölda og það er alveg óhjákvæmilegt að við þessar aðstæður þá fer eitthvað úrskeiðis.“ Bragi segir að barnavernd hafi alltaf verið olnbogabarn íslensks velferðarkerfis. Stjórnmálamenn hafi sýnt málaflokknum áhugaleysi og hann því fjársveltur frá upphafi. Hann segir brýnt að úr því verði bætt. „Ég ítreka bara mín meginskilaboð. Ég vona að þetta mál verði til þess að menn fari að hugsa um barnavernd sem alvöru úrlausnarefni í okkar velferðarsamfélagi. Og að það verði hvatning stjórnvöldum til þess að leggja til meira fjármagn.“ Lengra viðtal við Braga um málefni Bakkakots má sjá í Kastljósi í kvöld, að loknum fréttum, íþróttum og veðri.