Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Varðist gagnrýni á samfélagsmiðlum manns sem var vistaður í Bakkakoti

  • What: Former director of Barnaverndarstofa (Icelandic Child Protection Agency) responds to criticism regarding alleged abuse at Bakkakot children's home.
  • Impact: Discussion and debate surrounding historical cases of abuse in the Icelandic child welfare system.
Read Full Article →

Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, varðist gagnrýni á hendur sér í athugasemdum við Facebook-færslu Unnars Þórs Sæmundssonar , eins þeirra sem segjast hafa verið beittir margvíslegu ofbeldi á Bakkakoti á Suðurlandi í æsku. Unnar gagnrýndi viðbrögð Braga sem sagðist í viðtali í fréttum og Kastljósi hvorki hafa vitað af Bakkakoti og né heyrt um ofbeldi gegn fósturbörnum fyrr en greint var frá því í Kveik. Unnar var meðal þeirra sem stigu fram í umfjöllun Kveiks um Bakkakot . Unnar Þór brást við orðum Braga í aðsendri grein á Vísi í dag. Bragi svaraði Unnari í Facebook-athugasemd síðdegis. Þar segist hann hafa beitt sér fyrir umbótum um hæfnismat og fræðslu sem skilyrði fyrir leyfi til að verða fósturforeldri á 10. áratug síðustu aldar. Þær breytingar hafi hins vegar ekki verið afturvirkar og því hafi ekki verið „hróflað við þeim hundruðum fósturbarna sem þegar voru í fóstri“ líkt og Bragi orðar það. Athugasemdir Braga:

Share this article