Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einkenni en ekki afsökun að vita ekki af alvarlegustu brotum

  • What: An article discusses criticism of the former director of Barnaverndarstofa (Icelandic Child Welfare Agency) regarding his alleged lack of awareness of serious abuses within the system.
  • Impact: The article highlights concerns about the oversight and accountability within the child welfare system.
Read Full Article →

Unnar Þór Sæmundsson, einn mannanna sem hafa stigið fram og sagt konu sem var með þá í fóstri hafa beitt sig ofbeldi, gagnrýnir viðbrögð Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, við því sem komið hefur fram í tveimur þáttum Kveiks. Bragi sagði í viðtali í fréttum og Kastljósi ekki hafa vitað af Bakkakoti á Rangárvöllum og að hann hefði ekkert heyrt um ofbeldi gegn fósturbörnum fyrr en greint var frá því í Kveik. Bragi sagði málefni Bakkakots ekki hafa ratað inn á sitt borð þegar hann var forstjóri Barnaverndarstofu. Hann lýsti harmi sínum vegna þeirra atburða sem mennirnir lýstu og hvatti stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu. Unnar Þór bregst við orðum Braga í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann finnur að því að Bragi hafi ekki vitað af alvarlegum brotum innan kerfisins. „Þegar sá sem lýsir sér sem arkitekt kerfisins segist jafnframt ekki hafa vitað af alvarlegustu brotum innan þess, þá er það ekki afsökun heldur einkenni. Einkenni kerfis sem var ekki hannað með raunverulegt aðhald í huga, heldur með þeirri hugmynd að ábyrgð væri eitthvað sem mætti út vatna, frekar en axla,“ skrifar Unnar. „Sú hugmynd að vandinn kunni að vera hönnun kerfisins sjálfs virðist aldrei koma til greina. Þess í stað er vísað í umfang, flækjustig og aðstæður eins og kerfi verði til af sjálfu sér, óháð þeim sem móta þau. Bragi talar um að horfa til nútíðar og skoða hvernig við erum að standa okkur í dag.“ Unnar segir að tryggja verði að ábyrgð, eftirlit og vernd séu ófrávíkjanleg en ekki valkvæð hugtök. Hann segir að vandinn liggi ekki í því hvað fólk vissi ekki heldur að kerfið hafi gert því kleift að vita ekki.

Share this article