Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Örfá prósent nota ekki bílbelti í Evrópu en eiga þátt í mörgum banaslysum

  • What: A report indicates that a small percentage of drivers in Europe do not use seatbelts but are involved in a disproportionate number of fatal traffic accidents.
  • Impact: Lack of seatbelt use contributes significantly to fatalities, especially in rear seats in Eastern and Southern Europe.
Read Full Article →

Örfá prósent ökumanna í Evrópu, eitt til fimm, nota ekki bílbelti en tengjast tuttugu til fimmtíu af hundraði banaslysa í umferðinni. Frá þessu er greint á vef FÍB . Þar segir að í flestum löndum Vestur- og Norður-Evrópu sé notkun öryggisbelta í framsætum bifreiða á bilinu 95 til 99 prósent. Hins vegar sé algengur misskilningur að farþegar í aftursætum séu öruggari án beltis, ekki síst í löndum Austur- og Suður-Evrópu þar sem notkun belta í aftursætum er á milli 70 og 80 af hundraði. Norðurlandabúar spenni aftursætisbeltin nánast jafnt á við beltin í framsætunum. Rannsóknir sýni að vöru- og sendibílstjórar noti belti síður en almennir ökumenn enda þurfi þeir oft að fara inn og út úr farartækjum sínum. Mörg Evrópulönd voru fyrst til að lögleiða notkun öryggisbelta í bílum og teljast í fararbroddi þegar kemur að notkun þeirra. Strangar reglur gildi um bílbeltanotkun í öllum sætum í löndum Evrópusambandsins og EES og í flestum löndum þykir félagslega óásættanlegt að nota þau ekki. Auk þess gefa margir nútímabílar frá sér óþægilegt og ágengt hljóðmerki séu beltin ekki spennt.

Share this article