Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tvöföld veikindi hjá því opinbera

  • What: A report indicates that public sector employees in Iceland take sick leave twice as often as those in the private sector.
  • Impact: The direct cost to the public sector due to sick leave is significantly higher than in the private sector.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 6:00 Tvöföld veikindi hjá því opinbera Fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda er tvöfalt algengari en í einkageiranum. mbl.is/Birta Margrét Fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda er tvöfalt algengari en í einkageiranum og beinn kostnaður hins opinbera vegna veikinda er umtalsvert hærri en í einkageiranum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar úttektar Viðskiptaráðs Íslands á veikindarétti opinberra starfsmanna. Frétt af mbl.is Margir veikindadagar án veikinda Í úttekt Viðskiptaráðs kemur fram að eftir sex mánuði í starfi hefur opinber starfsmaður 119 daga í veikindarétt. Það er sjöfaldur veikindaréttur miðað við einkageirann. Þá er veikindaréttur opinberra starfsmanna eftir sex mánuði aðeins þremur dögum minni en veikindaréttur starfsmanna í einkageiranum eftir fimm ár í starfi. Úttektin leiðir í ljós að fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda er tvöfalt algengari en í einkageiranum. Um 6% greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna eru vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1% í einkageiranum. „Tölur frá Hagstofunni sýna að meðalfjöldi veikindadaga í einkageiranum voru 8 dagar á meðan veikindadagar hjá hinu opinbera voru 16 dagar, eða tvöfalt fleiri,“ segir í úttektinni. Rakið er að ekki virðist hafa tekist að fækka veikindadögum opinberra starfsmanna, en það hafi verið yfirlýst markmið með styttingu vinnuvikunnar. „Staðan í Reykjavík bendir til þess að þetta markmið hafi ekki náðst þar sem fjöldi veikindadaga hefur haldist óbreyttur eftir innleiðingu styttingu vinnuvikunnar. Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar nam um 7,5% árið 2024, sem jafngildir um tuttugu dögum í veikindafjarvistir á árinu.“ Sitja skör hærra en hinir Útreikningar ráðsins leiða í ljós að þessar auknu fjarvistir vegna veikinda valdi miklum kostnaðarauka fyrir hið opinbera. „Heildarlaunaútgjöld ríkis og sveitarfélaga voru um 650 milljarðar árið 2024. Út frá því má áætla að beinn árlegur kostnaður hins opin­bera vegna veikinda umfram það sem gerist í einkageiranum nemi um 19 milljörðum á ári. Þar af falla til um 4,5 milljarðar hjá Reykjavíkurborg,“ segir í úttektinni. Þá segir að Viðskiptaráð telji að ekki séu málefnaleg rök fyrir því að veikindaréttur sé ríkari hjá opinberum starfsmönnum en í einkageiranum. Ekkert jafnræði sé í því að þeir sitji skör hærra en hinir. „Ráðið leggur því til að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við einkageirann.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér „Er að deita eldri konu prank á pabba“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Snjókoma eða él norðan- og austanlands Tvöföld veikindi hjá því opinbera Svartsýni í könnun SI um markaðinn Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Samfylkingin ekki lengur stærst Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti „Stöðugleikareglan er platregla“ Segist ekki hafa vitað af Bakkakoti Ólafur Ragnar kveðst óttast Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndir: Snjó kyngir niður í Vestmannaeyjum „Það er sannarlega alltaf von“ Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot „Er að deita eldri konu prank á pabba“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Snjókoma eða él norðan- og austanlands Tvöföld veikindi hjá því opinbera Svartsýni í könnun SI um markaðinn Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Ásökun um vanhæfi Piparúða beitt gegn ungum dreng Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Samfylkingin ekki lengur stærst Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti „Stöðugleikareglan er platregla“ Segist ekki hafa vitað af Bakkakoti Ólafur Ragnar kveðst óttast Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndir: Snjó kyngir niður í Vestmannaeyjum „Það er sannarlega alltaf von“ Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot

Share this article