Kostnaður hins opinbera vegna umframveikinda er um 19 milljarðar á ári, samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Í úttektinni kemur fram að opinber starfsmaður eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum en starfsmaður með sama starfsaldur í einkageiranum. Samhliða auknum réttindum verði veikindafjarvistir tvöfalt lengri hjá hinu opinbera. Um 6% greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna séu vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1% á almennum vinnumarkaði. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir misskilings gæta í umræðunni. „Það er til dæmis ekki okkar upplifun og ekki í samræmi við okkar tölur að starfsmenn okkar séu eitthvað meira veikir heldur en aðrir. En þeir eru sannarlega lengur hjá okkur skráðir veikir af því að réttur þeirra er meiri innan ramma launagreiðandans.“ Elliði segir að hlutfall fjölda veikindadaga í skammtímaveikindum sé svipað bæði í opinbera geiranum og á almenna vinnumarkaðnum, eða 2,8-3% í sveitarfélaginu Ölfusi sem sé sambærilegt við það sem er á almennum vinnumarkaði. Þegar réttindum ljúki í langtímaveikindum hjá starfsmanni á almenna markaðinum, þá færist viðkomandi yfir í almannatryggingakerfið. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs að fjöldi veikindadaga í skammtímaveikindum hafi ekki verið skoðaður sérstaklega í útektinni en vandinn liggi í því hversu ójöfn réttindin eru. Viðskiptaráð vill jafna veikindarétt á milli markaða. „Það er ekki síst til þess að fólk sem glímir við langtímaveikindi færist í rétt úrræði, hætti þá að vera á forræði sinna vinnuveitenda og færist yfir í endurhæfingarlífeyri eða örorkulífeyri því þau kerfi eru hönnuð til að hjálpa fólki sem glímir við langtímaveikindi að komast aftur inn á vinnumarkaðinn,“ segir Björn Brynjúlfur.