Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tvöfalt fleiri veikindadagar á opinberum vinnumarkaði

  • What: A report indicates that public sector employees in Iceland take sick leave twice as often as those in the private sector.
  • Impact: This results in significant costs to the government and potential impact on the quality of public services.
Read Full Article →

Fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda er tvöfalt algengari en á almenna vinnumarkaðnum og veikindaréttur er mun ríkari. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands þar sem vísað er í tölur Hagstofunnar. Þar er áætlað að beinn árlegur kostnaður hins opinbera vegna veikinda umfram það sem gerist í einkageiranum nemi 19 milljörðum á ári, þar af 4,5 milljörðum hjá Reykjavíkurborg. Óbeinn kostnaður sé þar ekki talinn með, til að mynda vegna raskana á starfsemi, yfirvinnu annarra starfsmanna, tímabundinna ráðninga og minni framleiðni. „Umframveikindin eru því ekki aðeins kostnaðarsöm í krónum talið heldur geta þau einnig grafið undan gæðum opinberrar þjónustu. Heildaráhrifin eru því meiri en framangreind upphæð gefur til kynna.“ Veikindaréttur sé einnig mun ríkari fyrir opinbera starfsmenn en í einkageiranum. Eftir sex mánuði í starfi hafi opinber starfsmaður 119 daga í veikindarétt, sjöfalt á við starfsmann á almennum markaði. Um 6% greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna séu vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1% á almennum vinnumarkaði. Meðalfjöldi veikindadaga í einkageiranum séu átta dagar meðan veikindadagar hjá hinu opinbera séu sextán. Viðskiptaráð Íslands telur ekki vera málefnaleg rök fyrir því að veikindaréttur sé ríkari hjá hinu opinbera. Það samræmist illa grundvallarsjónarmiði um jafnræði og valdi skekkju í opinberri umræðu þar sem ekki sé tekið tillit til þess munar við samanburð á launakjörum. Ráðið leggur því til að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við einkageirann.

Share this article