- What: A shipment of dust binding agent is expected to arrive in Iceland to combat high levels of air pollution in the capital region.
- Impact: The agent will be used to reduce air pollution, particularly in dry weather conditions.
Mikil loftmengun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu og gæti verið áfram næstu daga. Rykbindiefni sem notað er til að draga úr loftmengun kláraðist í liðinni viku. G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni, segir meira hafa verið notað af rykbindiefni í vetur en venjulega. Hann greindi frá því í Morgunútvarpinu á Rás 2 að efnið væri væntanlegt til landsins um helgina. Reykjavíkurborg og Vegagerðin kaupi saman rykbindiefni og það komi til landsins með skipi. Skipið hafi þurft að leita í var við Gautaborg í Svíþjóð í einhverja daga. „Skipið er lagt af stað og verður komið hérna á sunnudaginn og verður vonandi tollafgreitt á mánudagsmorgun,“ segir G. Pétur. Fram hefur komið að erfitt geti reynst að rykbinda í þurru veðri eins og hefur verið að undanförnu. „Þetta er sett á bíla sem sprauta þessu út þannig að ég held að menn reyni nú að gera það, ef það er ekki ómögulegt, að rykbinda um leið og við getum.“