- What: A complaint has been filed against a basketball coach regarding his training methods.
- Impact: The complaint alleges inappropriate training methods and has caused controversy within the sports community.
Athygli vakti þegar embætti samskiptaráðgjafa íþrótta-og æskulýðsstarfs skilaði af sér í apríl sautján blaðsíðna áliti þar sem hann fór þungum orðum um þjálfunaraðferðir körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Kallaði álitið „glæp“ Brynjar er umdeildur innan íþróttahreyfingarinnar, hefur óspart látið í ljós skoðun sína á mönnum og málefnum og samskiptaráðgjafinn lét þess raunar getið í áliti sínu að embættinu hefðu borist tilkynningar frá fyrrverandi iðkendum og foreldrum þeirra sem hefðu ekki treyst sér til að stíga fram undir nafni af ótta við möguleg viðbrögð. Brynjar lýsti strax yfir megnri óánægju með álitið í fjölmiðlum og fór hörðum orðum um starfsmenn samskiptaráðgjafans, við litla hrifningu stjórnar ÍSÍ sem fordæmdi orðræðu hans og lýsti yfir stuðningi við embættið. Telja andmælarétt hafa verið veittan til málamynda Í maí sendu Brynjar og Jóhanna Jakobsdóttir, formaður körfuboltafélagsins Aþenu, svo formlega kvörtun til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Viðbótargögn voru send ráðuneytinu í júlí þar sem félagið sagði álit samskiptaráðgjafans hafa valdið óafturkræfum skaða fyrir Aþenu, Brynjar Karl, leikmenn félagsins og aðra iðkendur. Vegið hefði verið að æru Brynjars og persónuverndarsjónarmið ekki virt, og gagnrýnt að skýrslan hefði ratað til fjölmiðla. Í kvörtuninni sjálfri eru gerðar margvíslegar athugasemdir við vinnubrögð og álit samskiptaráðgjafans; andmælaréttur hafi verið virtur að vettugi og eingöngu veittur til málamynda, spurningarmerki sett við hvort embætti samskiptaráðgjafans hafi rétt á að hefja frumkvæðisathugun og þeirri spurningu velt upp af hverju embættið hafi ekki aðhafst fyrr og haft samband við Aþenu í ljósi þess að elstu erindin séu frá árslokum 2023. Nálgunin er sögð hafa einkennst af hlutdrægni og upplýsinga verið leitað frá utanaðkomandi aðilum sem ýmist hafi enga aðkomu haft af starfi félagsins eða verið gagnrýnir á störf þess frá fyrri tíð. Fékk erindi frá ráðuneytinu fimm mánuðum eftir að kvörtun barst Í þeim samskiptum sem Spegillinn hefur undir höndum virðist erindinu hafa verið svarað með sjálfvirku svari ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur fyrst skriflega samband við forsvarsmenn félagsins um miðjan nóvember þegar þeir eru upplýstir um að svar hafi borist frá embætti samskiptaráðgjafa við kvörtun félagsins og þeim gefnar tvær vikur til að svara erindinu. Þegar þetta er gagnrýnt og farið fram á lengri frest er upplýst um að ráðuneytið hafi talið tilefni til að taka kvörtun þeirra til athugunar og beðist velvirðingar á að erindið hafi ekki verið staðfest formlega heldur eingöngu með sjálfvirku svari. Ráðuneytið óskaði eftir viðbrögðum frá samskiptaráðgjafanum fimm mánuðum eftir að kvörtun Aþenu barst. Samskiptaráðgjafi hafnar gagnrýni Í svari samskiptaráðgjafans, sem ráðuneytið fékk sent ellefta nóvember, er gagnrýni forystumanna Aþenu hafnað; tilefni þessarar athugunar hafi hvorki verið að frumkvæði embættisins né byggst á fjölmiðlaumfjöllun heldur á fjölmörgum ábendingum og erindum sem borist hafi frá sérfræðingum, foreldrum og aðilum innan íþróttahreyfingarinnar. Samskiptaráðgjafinn nefnir sérstaklega að eitt erindi hafi borist frá formanni Sálfræðingafélags Íslands sem í krafti stöðu sinnar hafi óskað eftir að málið yrði athugað. Embættinu hafi borið að bregðast við þegar tilkynningar og frásagnir berist frá ólíkum aðilum um sambærilegt efni. Þessum skýringum mótmæltu forystumenn Aþenu og ítrekuðu þar þá skoðun sína að embættið hefði farið út fyrir sitt verksvið og andmælaréttur verið brotinn. Von á niðurstöðu í lok mánaðar Mennta- og barnamálaráðuneytið segir í svari við fyrirspurn Spegilsins að á meðan mál sé í vinnslu sé ekki upplýst um einstaka þætti í meðferð þess. Málinu hafi verið úthlutað til skrifstofustjóra sem feli sérfræðingi það til vinnslu og þar sé það statt. Ekki sé vitað hvenær endanleg niðurstaða liggi fyrir. Í svörum ráðuneytisins til forsvarsmanna Aþenu fyrir nokkrum dögum kemur fram að reiknað sé með að málið verði klárað í lok þessa mánaðar.