Innlent | Morgunblaðið | 23.2.2026 | 21:20 Samfélagið hrynur til grunna Brynja Björk hefur skrifað sjónvarpsþætti sem njóta vinsælda víða um heim. Ljósmynd/Guðjón Jónsson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Spennuþættirnir Vaka hafa slegið í gegn í Svíþjóð og fleiri löndum undanfarnar vikur. Manneskjan á bak við þættina er Brynja Björk Garðarsdóttir sem hefur unnið að gerð þeirra í nokkur ár. Brynja segir í samtali við Morgunblaðið að algengt sé með verkefni eins og þetta að langan tíma geti tekið að koma hlutunum af stað, sérstaklega með stór verkefni eins og Vöku. „Þetta er samframleiðsla nokkurra fyrirtækja í þremur löndum, Svíþjóð, Íslandi og Bandaríkjunum. Þannig að hér leggst fjöldi manns á árarnar til þess að gera þetta að veruleika. Hugmyndin og sagan verða til hérna á Íslandi en færast svo yfir til Svíþjóðar þegar sænskt framleiðslufyrirtæki kemur inn, sem var að mörgu leyti heppilegt því það eru ákveðnir þættir í sögunni sem pössuðu betur í aðeins stærra samhengi á meginlandinu. Ég er skapari seríunnar og aðalhandritshöfundur en fékk svo frábæran sænskan handritshöfund til liðs við mig, hana Pauline Wolff sem skrifar tvo þætti,“ segir Brynja en Sagafilm tekur þátt í framleiðslunni, Þættirnir eru sýndir á Amazon Prime í Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Þýskalandi, Ítalíu, Bretlandi, Belgíu, Danmörku, Írlandi, Portúgal, Spáni, Sviss og Hollandi. Þeir eru síðan væntanlegir í sýningu hjá RÚV hér heima. Samkvæmt upplýsingum frá RÚV hefur ekki verið ákveðið hvenær frumsýnt verður. Enn á toppnum í Svíþjóð Mér sýnist að viðtökur hafi verið frábærar, efsta sæti í Svíþjóð til að mynda. Hvernig hafa viðtökur og umsagnir verið? „Já, hún opnaði í topp tíu í öllum löndum þar sem serían var frumsýnd og mér skilst að þeir séu enn í fyrsta sæti á Amazon Prime í Svíþjóð þannig að það er bara ótrúlega gaman hvað það virðist mikill áhugi á þessu. Þetta hefur samt verið svolítið skrýtið fyrir mig hérna heima því þótt svona gríðarlega margir séu að horfa úti í heimi hafa Íslendingar ekkert séð enn. En það er skemmtilegt að fylgjast með viðtökunum úti og ég er bara ótrúlega þakklát fyrir þær og auðvitað alla sem lögðu hönd á plóg, stórkostlegt hæfileikafólk.“ Brynja er viðskiptafræðingur að mennt og búsett í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum Guðjóni Jónssyni leikstjóra. Hún starfaði áður við fjölmiðla- og markaðsmál en hefur undanfarin ár aðallega unnið við handritagerð fyrir sjónvarp. Aðspurð segir hún að Vaka sé dystópískur vísindatryllir sem fjallar um það þegar faraldur banvæns svefnleysis breiðist eins og eldur í sinu um Stokkhólm. „Í þáttunum fylgjumst við með fólki á ólíkum stöðum í samfélagi sem hrynur smám saman til grunna, ráðherra neyðist til að velja á milli þess að koma böndum á ástandið eða koma syni sínum í skjól á meðan úrræðagóð sjúkraflutningakona og ungur áhrifavaldur reyna að halda sér á floti í ringulreiðinni sem tekur yfir borgina.“ Horfði of mikið á sjónvarpið Hvaðan kemur pælingin á bak við þættina? Þetta er ekki beint hefðbundið umfjöllunarefni sem við eigum að venjast í sjónvarpsþáttum hér heima. „Ég var og er mikill bókaormur og bíónörd. Ég ólst upp í níunni þegar sjónvarpsiðnaðurinn var í örum vexti á Íslandi, Stöð 2 komin af stað og allt þetta. Ég hugsa að ef það væri satt að maður fengi ferköntuð augu af því að horfa of mikið á sjónvarpið, eins og sagt var í gamla daga, væri ég eflaust með þau. Sjónvarp og bíó voru minn kvikmyndaskóli. Ég hef síðan alltaf haft mikinn áhuga á svona dystópískum sögum, svona óþægilegri ímyndaðri framtíð og langaði líka að skrifa „ensemble-sögu“ – ég veit ekki alveg hvort það er til íslenskt hugtak yfir það en þá á ég við sögur sem hafa ekki beint einn aðalkarakter heldur nokkra sem flétta saman söguþráðinn. Í Vöku fáum við, eins og ég sagði, að kynnast nokkrum persónum sem eru ólíkar innbyrðis en allar fastar í þessari atburðarás sem fer af stað þegar faraldurinn brýst út í borginni. Mér finnst líka alltaf mjög áhugavert að skoða hvernig fólk bregst við þegar heimurinn fer á hvolf. Það vill nefnilega oft vera þannig að þegar allt fer í skrúfuna sér maður glitta í bæði það besta og versta í mannlegu eðli.“ Brynja er að lokum spurð hvað sé á teikniborðinu í dag og við hvað hún sé að fást dagsdaglega. Kvikmyndagerðin fullt starf „Ég vinn við bæði handrita- og kvikmyndagerð í fullu starfi og hef gert síðastliðin ár, bæði svona lengri verkefni eins og kvikmyndir og sjónvarpsseríur en líka auglýsingar og annað efni fyrir fyrirtæki. Mér finnst mjög gaman að klippa líka og geri töluvert af því – ég hugsa líka að það hafi áhrif á það hvernig ég sé fyrir mér hlutina og nálgast senuvinnu. Ég er alltaf með nokkrar hugmyndir í þróun, bæði sjónvarpsseríur og kvikmyndir, en einmitt núna er ég að vinna í spennumynd með yfirnáttúrulegu elementi. Ég skrifaði líka „dramedy“ – hér vantar mig gott íslenskt orð – sem sagt dramaseríu með léttara ívafi sem gerist upp úr 1990 sem ég er spennt að koma í framleiðslu. Það er svona skemmtileg stemning í kringum þann söguheim sem ég hlakka mjög til að sýna fólki.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Samfélagið hrynur til grunna Everton – Man. Utd, staðan er 0:0 Thelma Karen skoraði í ellefu marka sigri Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Fangelsaðir fyrir Bótox-misferli Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Nýjast á mbl.is » Samfélagið hrynur til grunna Everton – Man. Utd, staðan er 0:0 Thelma Karen skoraði í ellefu marka sigri Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Fangelsaðir fyrir Bótox-misferli Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikil andstaða í umsagnarferli Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Sýnir hvað það þarf lítið til „Við þurfum að fara í meiri vinnu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat