Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sláandi tölur um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 10:45 Sláandi tölur um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum Aðeins 6,6% félagsráðgjafa hafa ekki upplifað ofbeldi í starfi. Það er því ekki mikið öryggi á starfsvettvangnum, sem þarf að breyta. Ljósmynd/Colourbox „Við sjáum sláandi tölur í könnun sem við í siðanefnd félagsráðgjafa létum gera hjá okkar félagsmönnum í sumar um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum,“ segir Thelma Eyfjörð Jónsdóttir félagsráðgjafi. Hún flytur erindi um könnunina á Félagsráðgjafaþingi sem haldið er á morgun á Hilton Reykjavík Nordica. Á þinginu verða flutt um 40 önnur erindi. „Eftir þessa könnun sjáum við að ofbeldi gagnvart félagsráðgjöfum er miklu algengara en nokkurn óraði fyrir. Það eru aðeins 6,6% svarenda sem höfðu aldrei orðið fyrir ofbeldi í starfi, sem er sláandi niðurstaða,“ segir Thelma. Könnunin var send til u.þ.b. 500 félagsráðgjafa í vor, allra þeirra sem hafa starfsleyfi á landinu. Þar af svöruðu 30% könnuninni, svo þessar niðurstöður gefa vísbendingu um að það þurfi að skoða málið enn betur. Hátt hlutfall orðið fyrir áreitni „Í ljós kom að 86% svarenda hafa orðið fyrir ofbeldisfullu tali frá skjólstæðingum og ógnandi framkomu í sinn garð. Þá höfðu 43% fengið hótanir um líkamlegt ofbeldi og 31% fengið hótanir gegn heimili og fjölskyldu. Síðan hafa 12% svarenda orðið fyrir líkamlegu ofbeldi af hendi skjólstæðinga. Þetta eru háar tölur,“ segir Thelma. Markmiðið með erindi hennar er að vekja athygli á þessari stöðu og koma með hugsanlegar tillögur að breytingum í starfsumhverfi félagsráðgjafa. „Við ákváðum að gera þessa könnun í kjölfar umræðu um ofbeldi gagnvart framlínufólki í ýmsum störfum, þá kannski fyrst og fremst út af nýlegri umræðu gagnvart lögreglunni. En í okkar fagi er viðloðandi það viðhorf að ofbeldisfull framkoma sé bara hluti af starfinu,“ segir Thelma og telur að þetta ástand þurfi að breytast. Hvað er hægt að gera? „Það er vissulega hægt að kæra fólk fyrir brot gegn opinberum starfsmönnum, en oftast nær er það starfsmaðurinn sjálfur sem þarf að taka þá ákvörðun að kæra. Við teljum æskilegt að það breytist og að í ofbeldismálum verði það stofnunin sem starfsmaðurinn starfar hjá sem leggi fram kæru. Þannig teljum við að lögin sem séu til staðar verndi okkur betur og þannig sé spornað við að opinberir starfsmenn sitji undir hótunum og ofbeldi í starfi,“ svarar Thelma. Fjölskyldunni ógnað Aðspurð hvað sé nú þegar gert til að reyna að auka öryggi félagsráðgjafa í starfinu segir hún það mismunandi. Öryggi þurfi að vera til staðar í viðtalsrýmum og skýrir verkferlar innanhúss. „Það ættu að vera viðvörunarhnappar á flestum stöðum og mikilvægt að tryggja að svo sé. Síðan væri einnig mikilvægt að skoða það þegar félagsráðgjafar eru kallaðir í erfið mál að tryggt sé að þeir fari ekki einir.“ Thelma telur best að stofnanir hins opinbera samhæfi verkferla í svona málum og láti ekki ábyrgðina hvíla á einstökum starfsmönnum. Það hafi sýnt sig að aðeins 25% tilvika séu kærð til lögreglu. „Ég held að þröskuldurinn sé hár í okkar stétt og það þurfum við sem fagmenn líka að skoða,“ segir hún. Samkvæmt svörum í könnuninni kom fram hjá nokkrum sem höfðu lent í ofbeldi að það hafði áhrif á heilsu þeirra og ánægju í starfi. Thelma segir erfitt hafa verið að lesa slík svör. Hjá einum hafi komið fram að ógnanir um ofbeldi gegn fjölskyldu hafi haft verri áhrif en að lenda í ofbeldinu sjálfur. Þegar hún er spurð hvort brottfall hafi orðið í stéttinni vegna þessa, segist hún ekki hafa slíkar tölur en stefnan sé að fylgja eftir þessari könnun með ítarlegri rannsókn. Þing félagsráðgjafa haldið á morgun Álitamál um þagnarskyldu Mörg erindi og málstofur eru á þinginu og þar m.a. farið yfir málefni fatlaðra og aldraðra, barna, flóttamanna, fósturforeldra, fólks með neysluvanda. Hrönn Ljótsdóttir félagsráðgjafi leiðir málstofuna: Hvenær rjúfum við trúnað? „Við erum að velta upp ýmsum þeim áskorunum sem heilbrigðisstarfsmenn standa frammi fyrir þegar t.d. réttur til lífs, sem er stjórnarskrárvarinn réttur, skarast á við þagnarskyldu heilbrigðismanna. Þetta eru flókin mál og frumskylda okkar er trúnaður samkvæmt siðareglum, nema í barnaverndarmálum,“ segir Hrönn og hún segir mikilvægt að skoða allar hliðar í svona erfiðum málum og reyna að hafa sem mestan skýrleika. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Færði slæmar fréttir af leikmanni Liverpool Sláandi tölur um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum Leita húsnæðis fyrir leikskóla 74% of homes sold below asking price Gæti farið í langt bann Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Svartsýni í könnun SI um markaðinn „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Tvöföld veikindi hjá því opinbera Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa 74% íbúða seldust á undirverði Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Færði slæmar fréttir af leikmanni Liverpool Sláandi tölur um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum Leita húsnæðis fyrir leikskóla 74% of homes sold below asking price Gæti farið í langt bann Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Ásökun um vanhæfi „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Tvöföld veikindi hjá því opinbera Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa 74% íbúða seldust á undirverði Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article