Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Börnum félagsráðgjafa hótað og setið um heimili þeirra

  • What: A survey in Iceland revealed that social workers are frequently subjected to threats and violence, including threats against their homes and families.
  • Impact: Social workers are taking precautions to protect themselves and their children due to the frequency of threats.
Read Full Article →

Tæplega þriðjungur allra félagsmanna í Félagsráðgjafafélagi Íslands svaraði könnun um ofbeldi í starfi sem siðanefnd félagsins sá um að framkvæmda. Spurningalisti var sendur á 500 félagsráðgjafa og um þrjátíu prósent svöruðu. 86% þeirra sem svöruðu sögðust hafa orðið fyrir munnlegu ofbeldi í starfi, og sama hlutfall upplifað ógnandi framkomu. Þá höfðu 43% fengið hótanir um líkamlegt ofbeldi og tæplega þriðjungur fengið hótanir gegn heimili eða fjölskyldu. 12% greindu frá því að hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og aðeins 6,6% sögðust aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi eða ógnunum í starfi. Áhyggjuefni hve oft börnum og fjölskyldu er hótað „Við höfum gríðarlegar áhyggjur af því hversu oft er verið að hóta fjölskyldumeðlimum og börnum. Þannig að félagsráðgjafar þurfa að gera ákveðnar varúðarráðstafanir vegna sinna eigin barna,“ segir Thelma Eyfjörð Jónsdóttir félagsráðgjafi og meðlimur í siðanefnd Félagsráðgjafafélags Íslands. Dæmi eru um að setið sé um heimili félagsráðgjafa og að börn þeirra geti ekki verið ein heima eða gengið ein heim. Jafnvel þurfi að hafa sérstakar krækjur á símanum sem tryggi að lögregla bregðist strax við hringingum frá þeim. Hótanir gegn fjölskyldunni reynast mjög þungbærar. Ofbeldið á sér stað á flestum stöðum þar sem þörf er á félagsráðgjöfum. „Það er í barnavernd, félagsþjónustu, í heilbrigðiskerfinu og hjá sveitarfélögunum. Í rauninni er þetta bara þar sem félagsráðgjafar starfa,“ segir hún. Niðurstöðurnar sláandi en ekki óvæntar Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, segir það ekki nýtt að félagsráðgjafar verði fyrir ofbeldi eða ógnunum í starfi. „Þetta eru sláandi niðurstöður en koma ekki endlega á óvart,“ segir Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands. Ofbeldi hefur alltaf verið þekkt og við höfum séð, í löndunum sem við erum í stamstarfi við eins og í Noregi, að félagsráðgjafar hafa hreinlega verið myrtir við sín störf,“ segir hún. „Þannig að það er mikilvægt fyrir okkur að fá þessar niðurstöður,“ segir Steinunn. Hættan sú að fólk gefist upp og hverfi úr stéttinni Erfitt starfumhverfið auki líkur á kulnun og veikindum í stéttinni. Það sé mjög brýnt að yfirvöld stuðli að því að bæta vinnuumhverfi félagsráðgjafa og tryggja öryggi þeirra. „Því að ef að við gerum ekki neitt þá er hættan sú að við fólk bara gefst upp á störfunum og við missum út hæft starfsfólk úr fagstéttinni og við viljum alls ekki sjá það gerast,“ segir Steinunn.

Share this article