- What: Landspítalinn (National University Hospital of Iceland) has been allocated 34 spaces to discharge patients to other institutions.
- Impact: The situation at the hospital's emergency room remains largely unchanged despite the increased capacity.
Innlent | mbl | 19.2.2026 | 20:05 Óbreytt staða þrátt fyrir að LSH hafi fengið 34 rými Á síðustu dögum hefur Landspítalanum verið útveguð 34 rými svo útskrifa megi einstaklinga þaðan og á aðra stofnun. mbl.is/Jón Pétur Staðan á Landspítalanum er að mestu óbreytt að sögn Gunnars Ágústs Beinteinssonar, framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs Landspítala. Þótt tekist hafi að útvega hjúkrunarrými hér og þar segir hann fjölda sjúklinga sem liggi á spítalanum, en þurfi að útskrifa, nánast óbreyttan. Því sé staðan á bráðamóttökunni í Fossvogi sú sama og í síðustu viku. Fimm ný rými Á síðustu dögum hafa Landspítalanum verið útveguð 34 rými svo útskrifa megi einstaklinga þaðan og á aðra stofnun. Gunnar segir 31 rými þegar komið í notkun. Af þeim séu 19 á höfuðborgarsvæðinu og 15 á Suðurnesjum. Fimm rýmanna eru ný, þ.e. þau voru ekki í kerfinu áður. Gunnar segir heilbrigðisráðuneytið vinna með samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu að því að auka svigrúm öldrunarstofnana til að bæta hratt við hjúkrunarrýmum þar sem hægt er. Frétt af mbl.is „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Fyrstu rýmin tekin í notkun í mars Hann segir þó mestu hjálpina í stöðunni nú vera að flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis í Urðarhvarfi þar sem 100 skammtímahjúkrunarrými, eða biðrými fyrir Landspítalann, verða tekin í notkun í áföngum. Vonast er til að fyrstu rýmin verði tekin í notkun í mars og segir Gunnar ráðuneytið vinna hörðum höndum að því. Málið skýrist fljótlega Talið berst að viðræðum ráðuneytisins við Klíníkina um opnun biðrýma. Gunnar segir að af þeirri þjónustu sem Klíníkin hafi boðið séu eingöngu biðrými fyrir aldraða sem hafi áhrif á fjölda bráðalegurýma Landspítala. Eins og Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku hefur Klíníkin boðist til að lyfta undir með spítalanum, meðal annars með því að framkvæma ýmsar aðgerðir og taka við sjúklingum sem annars þyrftu á þjónustu spítalans að halda. Klíníkin er að jafnaði með 15 til 20 laus legurými á dag. Gunnar segist ekki vera í stöðu til að tjá sig um viðræðurnar að öðru leyti en á von á því að málið skýrist fljótlega. Frétt af mbl.is Legurýmin gætu nýst von bráðar Haukar - FH, staðan er 13:18 Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar Gísli í góðum málum – jafnt hjá Palace Óbreytt staða þrátt fyrir að LSH hafi fengið 34 rými Fylgdust með netsvikum í rauntíma Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Beint: Andrew laus en enn til rannsóknar Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Verra en árið 1992 Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Það var bara allt á floti“ Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Haukar - FH, staðan er 13:18 Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar Gísli í góðum málum – jafnt hjá Palace Óbreytt staða þrátt fyrir að LSH hafi fengið 34 rými Fylgdust með netsvikum í rauntíma Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Beint: Andrew laus en enn til rannsóknar „Það var bara allt á floti“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Það var bara allt á floti“ Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum