- What: Iceland's Minister of Finance, Daði Már Kristófersson, commented on a recent report regarding sick leave among public sector employees.
- Impact: The minister stated that the issue of increased sick leave is more prevalent in municipalities than in the state government.
Innlent | mbl | 19.2.2026 | 20:45 Daði: Vandinn meiri hjá sveitarfélögunum Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Anton Brink Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir einhverja veikindafjarveru eðlilega. Í samtali við mbl.is um veikindafjarveru opinberra starfsmanna í ljósi nýlegrar úttektar Viðskiptaráðs bendir Daði á að staðan sé ekki einsleit innan hins opinbera og að fullyrðingar um tvöfalt meiri veikindi eigi ekki við um ríkið sjálft, vandinn sé meiri hjá sveitarfélögunum. Frétt af mbl.is Tvöföld veikindi hjá því opinbera Í miðri á Segir Daði Már samsetningu vinnuaflsins einnig hafa áhrif og að ríkið sé með aðra kynjasamsetningu en víða á vinnumarkaði. Geti það haft áhrif meðal annars vegna verkaskiptingar á heimilum. Nýlega var ný mannauðsstefna samþykkt fyrir ríkið og að sögn Daða er megináherslan að nálgast fjarveru vegna veikinda í gegnum faglega mannauðsstjórnun og styrkingu stjórnenda. Segir hann of snemmt að meta árangur þeirrar vinnu en að markmiðið sé að taka veikindafjarveru fastari tökum með bættri stjórnun. „Við erum svona í miðri á með þetta.“ Daði segir sérstaka áherslu lagða á að fylgjast með óeðlilega mikilli fjarveru sem geti bent til álags á vinnustöðum. Frétt af mbl.is Margir veikindadagar án veikinda Eðlileg réttindi á vinnumarkaði Úttekt Viðskiptaráðs sýnir að eftir sex mánuði í starfi eigi opinber starfsmaður 119 daga í veikindarétt, sem er sjöfaldur veikindaréttur á við það sem starfsfólki býðst í einkageiranum. Þá sé veikindaréttur opinberra starfsmanna eftir sex mánuði aðeins þremur dögum minni en veikindaréttur starfsmanna í einkageiranum eftir fimm ár í starfi. Enn fremur leiðir úttektin í ljós að fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda sé tvöfalt algengari en í einkageiranum. Um 6% greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna eru vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1% í einkageiranum og tölur frá Hagstofunni sýna að meðalfjöldi veikindadaga í einkageiranum var 8 dagar á meðan veikindadagar hjá hinu opinbera voru 16 dagar, eða tvöfalt fleiri, eins og segir í úttektinni. Um veikindadaga opinberra starfsmanna segir Daði að slík réttindi sé kveðið á um í kjarasamningum og breytingar á þeim yrðu aðeins gerðar við samningaborðið. „Ég held að þetta þurfi bara að skoða í samhengi. Þetta eru réttindi sem ég held að við séum öll sammála um að séu eðlileg á vinnumarkaði og eru alls staðar á vinnumarkaði. Það hefur verið skilningurinn hjá þessari ríkisstjórn og ég held hjá öllum ríkisstjórnum að þessi réttur þurfi að vera til staðar,“ segir Daði. Ráðherra segir breiða pólitíska samstöðu ríkja um að fólk eigi ekki að líða fyrir heilsufarsvanda umfram nauðsyn. „Í flestum tilfellum höfum við ekki ástæðu til að ætla annað en að þetta sé fullkomlega eðlileg nýting á rétti.“ Frétt af mbl.is Yngra fólkið kærulausara um veikindarétt Upplifir ekki víðtæka misnotkun Daði segist ekki upplifa víðtæka misnotkun veikindadaga hjá ríkinu. „Það er ekki okkar reynsla,“ segir hann og bætir við að opinberir starfsmenn séu almennt mjög meðvitaðir um mikilvægi framlags síns á vinnustað. „Þeim er mjög annt um vinnuna sína og þeir vinna auðvitað inni á vinnustöðum þar sem þeir gera sér fulla grein fyrir því að þeirra framlag skiptir miklu máli og ef það er ekki innt af hendi þá þarf einhver annar að gera það.“ Að mati Daða Más liggur lykillinn að fækkun veikindadaga í því að vinna markvisst á álagsþáttum á vinnustöðum og styðja stjórnendur í því hlutverki. Haukar - FH, staðan er 19:27 Afturelding vann eftir mikla spennu Trump: Mjög slæmt fyrir konungsfjölskylduna Daði: Vandinn meiri hjá sveitarfélögunum Góð ferð Hauka til Akureyrar Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Verra en árið 1992 Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Beint: Andrew laus en enn til rannsóknar „Það var bara allt á floti“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Það var bara allt á floti“ Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Sagði að skotið hefði verið á sig Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Haukar - FH, staðan er 19:27 Afturelding vann eftir mikla spennu Trump: Mjög slæmt fyrir konungsfjölskylduna Daði: Vandinn meiri hjá sveitarfélögunum Góð ferð Hauka til Akureyrar Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Það var bara allt á floti“ Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Sagði að skotið hefði verið á sig Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum