- What: A report of a shooting in the Sléttuvegur area was investigated by police and found to be unsubstantiated.
- Impact: The report was determined to be a false alarm.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tilkynning um skotárás reyndist ekki á rökum reist Guðmundur Atli Hlynsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerð á Sléttuvegi í dag vegna tilkynningar um skotárás. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að tilkynningin hafi ekki verið á rökum reist. Þá sé hvorki sá sem tilkynnti um „að skotið hefði verið á sig“ né sá sem átti að hafa skotið í varðhaldi lögreglu. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Réðu niðurlögum sinubrunans við Galtarlæk á hálftíma Varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar segir sinueldinn við Galtarlæk hafa reynst ósköp lítinn og að auðvelt hafi verið að slökkva í honum. Fyrir 34 mínútumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Enn eitt ólympíumetið í skautahlaupi og gullmark tryggði gullið í íshokkí Fjórir fljótustu menn voru undir ólympíumetinu í 1500 metra skautahlaupi karla á Ólympíueikunum í dag. Bandaríkin urðu ólympíumeistarar kvenna í íshokkí í kvöld eftir sigur í framlengdum úrslitaleik gegn Kanada. Fyrir 47 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fimm atriði sem þú ættir að vita um handtöku Andrews Hvernig tengjast Epstein-skjölin handtöku Andrews Mountbatten-Windsor? Hversu langt aftur þarf að leita til að finna svipað atvik, þar sem háttsettur meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar var handtekinn? Hér eru fimm áhugaverð atriði um handtökuna. Fyrir 58 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvar eru flokkarnir að bjóða fram? Miðflokkurinn stefnir á að bjóða fram í nær helmingi fleiri sveitarfélögum í kosningunum í vor en fyrir 4 árum og það sama má segja um Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í 36 sveitarfélögum og Píratar í einu, en þeir buðu fram í 6 síðast. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Hver sem er getur rekið áfangaheimili hvar sem er Hver sem er getur rekið áfangaheimili hvar sem er og ekkert eftirlit er með starfseminni. Dæmi eru um að fólk hafi dvalið á áfangaheimili í átta ár. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill gera sömu kröfur og til dvalarheimila. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Jón Erik um afrekið: „Þegar ég sá fréttirnar þá fattaði ég það“ Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson náði besta árangri Íslendings á Vetrarólympíuleikum í 20 ár þegar hann endaði í 25. sæti í svigi á mánudag. Jón var þó ekki meðvitaður um að hann væri að skrá sig á spjöld íslenskrar íþróttasögu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Opinberir starfsmenn ekki frekar veikir en aðrir Fjarvera opinberra starfsmanna er sögð tvöfalt algengari en á almennum markaði í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Bæjarstjóri Ölfuss segir opinbera starfsmenn ekki meira veika en aðra. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Grindvíkingar fá að velja um hvar þeir kjósa Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um sveitarstjórnarkosningar sem gefa Grindvíkingum sem áttu lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 val um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eiga lögheimili í. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Horfurnar dekkri en áður“ Sífellt fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljast undir auglýstu verði og Samtök iðnaðarins greina samdrátt á byggingamarkaði. Framkvæmdastjóri þeirra segir horfurnar dekkri en áður. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vilja heimila smásölu áfengis í vefverslunum Þingmenn Viðreisnar vilja breyta áfengislögum, setja skýrari lagaramma utan um vefverslun með áfengi og eyða óvissu um lögmæti innlendra vefverslana. Frumvarp þess efnis hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Sinueldur við Galtarlæk í Hvalfirði Slökkviliði barst tilkynning um sinubruna við Galtarlæk í Hvalfjarðarsveit rétt fyrir klukkan fimm. Enn er óvíst um hversu umfangsmikill eldurinn er. Þrír bílar voru sendir á vettvang. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Boðar stefnu í málefnum heimilislausra Félags- og húsnæðismálaráðherra boðar stefnu í málefnum heimilislausra og ríkið byggir húsnæði fyrir þennan hóp. Reykjavíkurborg ætlar að fjölga íbúðum fyrir heimilislausa um hundrað. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Ráðast gegn brotajárnshaugum sem taka á móti skipafarþegum á Seyðisfirði Á Seyðisfirði hafa stórkostlegir brotajárnshaugar verið lýti við hafnarsvæðið og blasað við skipagestum. Heilbrigðiseftirlit og Múlaþing skera upp herör gegn ruslinu sem Veðurstofan telur geta aukið eyðileggingarmátt snjóflóða og torveldað björgun. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Fyrir hvað var Andrew Mountbatten Windsor handtekinn? Andrew Mountbatten Windsor var handtekinn á heimili sínu í morgun en fyrir hvað? Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist 100 ára tónskáld bað Víking Heiðar að leika á afmælinu sínu György Kurtág, eitt merkasta tónskáld samtímans, fagnar 100 ára afmæli í dag. Víkingur Heiðar Ólafsson og eiginkona hans, Halla Oddný Magnúsdóttir, spila aðalhlutverk á tónleikum sem fara fram til heiðurs tónskáldinu í Mupa salnum í Budapest í kvöld. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Bandaríkjaher sagður reiðubúinn til árása á Íran Spenna hefur stigmagnast í samskiptum Bandaríkjanna og Írans. Bandaríkjaforseti hefur ekki fyrirskipað árás en bandaríkski herinn hefur aukið mjög herafla sinn á Persaflóa og Arabíuhafi. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Skíthrædd: Þarna er hún stúlkan Skíthrædd er plata eftir Unni Elísabetu. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Heilt á litið er platan sterk, það er kynngimagn í henni og kraftur sem hefur vafalaust losnað í sköpunarferlinu.“ Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Rósa Björk býður sig fram til formanns VG Rósa Björk Brynjólfsdóttir býður sig fram til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Formannskjör fer fram á landsfundi flokksins í byrjun mars. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Stytta opnunartímann eftir að krakkar fóru fram á að komast í kvöldsund Börn í sjöunda bekk á Húsavík fengu á dögunum reglum breytt í sundlaug bæjarins, svo þau gætu verið í lauginni án fylgdarmanns eftir átta á kvöldin. Það verður þó skammur fögnuður því opnunartíma laugarinnar verður breytt um mánaðamótin. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsréttur Tíu ára fangelsisdómur í Kiðjabergsmálinu Litháískur maður hefur verið sakfelldur fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samlanda hans í hinu svokallaða Kiðjabergsmáli. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Þorsteinn Pétur Guðjónsson hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Hann lét af störfum sem forstjóri Deloitte þegar ákæran var gefin út. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Skipulagsstofnun lögð niður Magnús Geir Eyjólfsson Skipulagsstofnun verður lögð niður og verkefni hennar flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Yfirlýst markmið laganna er að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri en í greinargerð frumvarpsins er áætlað að um 80 milljónir á ári sparist við sameininguna. Starfsfólki Skipulagsstofnunar verður boðið starf hjá HMS sem hér eftir mun heita Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Flestir vilja tvö styttri vetrarfrí fremur en eitt langt Meirihluti landsmanna vill að vetrarfríi í grunn- og framhaldsskólum sé skipt niður í tvö styttri frí í staðinn fyrir eitt lengra. Flest stærstu sveitarfélög landsins eru með styttri vetrarfrí fyrir og eftir áramót. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Fleira þarf til en aukið fjármagn til að vernda börn Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála segir það þyngra en tárum taki að börn sem eru í viðkvæmri stöðu skuli þurfa að þola ofbeldi. Aukið fjármagn í málaflokkinn myndi hjálpa við að leysa vandann, en fleira þurfi til. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Náðu samkomulagi um grásleppu Magnús Geir Eyjólfsson Þingflokkarnir hafa náð saman um afgreiðslu á frumvarpi Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur og fleiri þingmanna um afnám kvótasetningar grásleppu. Vilji meirihlutans stóð til að klára málið í dag. Greiða átti atkvæði um frumvarpið strax að loknu hádegishléi og að málið færi til þriðju og síðustu umræðu síðar í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu í röðum undir liðnum fundarstjórn forseta til að fordæma málsmeðferðina. Gerð voru ítrekuð hlé á þingfundi á meðan þingflokksformenn funduðu með forseta. Svo fór að atkvæði voru greidd um frumvarpið en meirihlutinn féllst á að frumvarpið færi ekki út úr nefnd fyrr en í mars, að lokinni kjördæmaviku. Björgvin Kolbeinsson / RÚV Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Íslensk tónlist áfram streymir Það eru feitir bitar í boði þessa vikuna í Undiröldunni: ný íslensk tónlist frá Bríeti og KK, Gyðu Valtýsdóttur, Hamparat, Memfismafíunni og fleirum. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjáðu: Æsispennandi úrslit í skímó Ein ný grein er á Vetrarólympíuleikunum í ár; fjallaskíði. Greinin kallast ski mountaineering á ensku og er yfirleitt stytt í skimo. Úrslit í sprettgöngu kvenna og karla var nú í dag og óhætt að segja að þau hafi verið spennandi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls og strætó Hugrún Hannesdóttir Diego Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans með minniháttar meiðsli eftir árekstur á gatnamótum Sæbrautar og Bústaðavegar í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 13:00. Þetta segir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Nokkur viðbúnaður var kallaður út. Lögreglubílar, sjúkrabílar og slökkvibíll voru sendir á vettvang. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Krefjast bóta vegna vistar á barnaheimilinu við Hjalteyri Fólk sem var vistað á b