Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Telur samgönguáætlun hafa verið afhjúpaða sem kjördæmapot

  • What: Icelandic media reports on the prioritization of infrastructure projects in a new transportation plan.
  • Impact: The report suggests political influence in the selection of projects, specifically regarding tunnel construction.
Read Full Article →

Spegillinn og Austurfrétt fjölluðu í byrjun vikunnar um aðdragandann að forgangsáætlun í jarðgangagerð eins og hún birtist í nýrri samgönguáætlun Eyjólfs Ármannssonar, innviðaráðherra. Stuðst var við gögn sem óskað var eftir frá ráðuneytinu sjálfu og þau vörpuðu ljósi á að jarðgöngin sem ráðherrann vildi voru sett framar í forgangsröðina. Forgangsröðun jarðganga „risamál“ að mati ráðherrans Þegar Eyjólfur mælti fyrir samgönguáætlun sinni á Alþingi lét hann þess getið að hún væri að mörgu leyti byggð á síðustu tillögu til samgönguáætlunar sem náði ekki fram að ganga. Stóra málið væri forgangsröðun í jarðgangaáætlun, henni væri breytt og það væri risamál. Ráðherrann setti Fljótagöng í fyrsta sæti en sló Fjarðarheiðargöng út af borðinu. Þá kom fram í umfjöllun síðustu daga að bjartsýni ráðherrans, að hægt væri að hefja framkvæmdir við Fljótagöng í byrjun næsta árs, rímaði ekki við áætlanir Vegagerðarinnar. Í svörum til Spegilsins og Austurfréttar sagði að í fyrsta lagi yrði hægt að hefja framkvæmdir sumarið 2027. Ekkert svigrúm væri þó fyrir neins konar utanaðkomandi tafir sem auðveldlega gætu orðið. Vill að ráðherra komi á opinn fund umhverfis-og samgöngunefndar Jónína Brynjólfsdóttir, forseti bæjarstjórnar Múlaþings, sakaði ráðherrann um að „svína á Austurlandi“ til að koma að sínum jarðgöngum í aðsendri grein á Austurfrétt í vikunni og Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í umhverfis-og samgöngunefnd, óskaði eftir því í gær að ráðherrann kæmi fyrir nefndina og stæði fyrir sínu máli. „Þessi umfjöllun Spegilsins og Austurfréttar afhjúpar það sem hefur blasað við öllum, að þetta er hreinræktað kjördæmapot.“ Jens segir ráðherra hafa borið fyrir sig skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri en tekið hana úr samhengi og notað hana sem skálkaskjól fyrir kjördæmapot. Þá hafi tímalína á Fljótagöngum heldur ekki verið rétt og hann eigi eftir að ræða það við formann stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar en formaður nefndarinnar er flokksbróðir Jens Garðars. Fyllsta ástæða til að ráðherra komi á fund nefndarinnar Ekkert er nýtt undir sólinni og samgönguáætlanir hafa oftar en ekki á sér það yfirbragð að kjördæmi viðkomandi ráðherra sé lyft upp með einum eða öðrum hætti. „En við gerum samt kröfu til þess að þetta byggi á faglegum forsendum en nú hefur það verið leitt í ljós að þarna búi ekki faglegar forsendur. Það er líka verið að tala um að það eigi að byrja að bora Fljótagöngin fyrr en Vegagerðin segir að það sé mögulegt að byrja. Það er ekki verið að segja rétt og satt frá heldur fara rangt með.“ Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur samgönguáætlun innviðaráðherra hafa verið afhjúpaða sem hreinræktað kjördæmapot. Þingmaður Samfylkingarinnar segir umfjöllun síðustu daga brýna þingmenn að vanda vel til verka. Fyllsta ástæða sé því fyrir því að ráðherra komi á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir sínum málum. Orð Vegagerðinnar um Fljótagöng komu á óvart Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir umfjöllun síðustu daga brýna hana og nefndina að vanda vel til verka. „Að kynna okkur vel og ítarlega öll gögn málsins sem liggja fyrir og vinna þessa mikilvæga vinnu eins vel og hægt er.“ Mikil þörf sé á mikilvægum úrbótum um allt land; í vegaframkvæmdum, flóðavörnum og vetrarþjónustu svo fátt eitt sé nefnt. Þótt meira fjármagn hafi verið sett í þessa samgönguáætlun en áður líði henni sjálfri í dag eins og það sé bara dropi í hafið. Ása lét þau orð falla í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni skömmu eftir að samgönguáætlunin leit dagsins ljós að hún teldi framkvæmdir við Fljótagöng geta hafist á þessu ári og ef ekki - þá snemma á því næsta. „Þegar ég fór í þetta viðtal var samgönguáætlun nýkomin út og ég var búin að kynna mér hana vel og hlusta vel á það sem ráðherra sagði og byggði orð mín á þeim orðum.“ Þau í nefndinni hafi ekki fengið að heyra þetta sjálf frá Vegagerðinni. „Þetta kom mér aðeins á óvart þegar ég sá þetta í fréttaflutningi. Reynist þetta vera rétt ét ég glöð þessi orð sem ég lét falla á Sprengisandi.“

Share this article