Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

  • What: HS Orka published an environmental assessment report on methods for storing deposits from pipes with increased natural radioactivity from Reykjanesvirkjun power plant.
  • Impact: The report addresses safe storage of deposits with increased natural radioactivity from boreholes at the Reykjanes power plant.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.2.2026 | 12:15 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál HS Orka hefur birt umhverfismatsskýrslu um leiðir til að geyma útfellingar úr lögnum með aukna náttúrulega geislavirkni. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson HS Orka hefur birt umhverfismatsskýrslu þar sem fjallað er um þær leiðir sem koma til greina til að geyma með öruggum hætti útfellingar með aukna náttúrulega geislavirkni úr lögnum frá borholum Reykjanesvirkjunar. Geislavarnir ríkisins gerðu HS Orku viðvart um mitt ár 2015 um að í útfellingasýnum úr lögnum frá nokkrum borholum á Reykjanesi hefði mælst aukin náttúruleg geislavirkni. Útfellingarnar innihalda geislavirkar samsætur blýs og pólons og var geislavirknin í einstökum sýnum yfir viðmiðunarmörkum í reglugerð um geislavarnir við notkun opinna geislalinda. Var þetta í fyrsta skipti sem geislun af þessu tagi mældist á Íslandi en víða erlendis er hún vel þekkt viðfangsefni í tengslum við námuvinnslu og olíu-, gas- og jarðhitavinnslu. Fram kemur í umhverfismatsskýrslunni, sem unnin var af VSÓ ráðgjöf, að í kjölfarið hafi HS Orka farið yfir verklagsreglur fyrirtækisins sem snúa að hreinsun lagna á virkjunarsvæðum til að tryggja að mönnum, dýrum og umhverfi stafaði ekki hætta af. Skipulagsstofnun ákvað árið 2016 að sú framkvæmd, sem fælist í hreinsun, flutningi og geymslu geislavirkra efna, væri matsskyld. Frá því að geislavirknin mældist fyrst hafa Geislavarnir ríkisins veitt tímabundið leyfi á hverju ári til að geyma útfellingarnar sem innihalda náttúrulega geislavirkni í lokuðum ílátum í gámum á geymslusvæði innan lóðar HS Orku á Reykjanesi á meðan leitað var langtímalausna. Ekki hægt að flytja efnin út Í skýrslunni segir að tafir hjá HS Orku við að ljúka umhverfismatsskýrslu megi rekja til nokkurra samverkandi þátta. Engar innlendar lausnir séu til fyrir förgun efnis sem innihaldi aukna náttúrulega geislavirkni, sem þýði að engin fordæmi eða staðlaðar verklagsreglur hafi verið til staðar. Í ljósi þess var í upphafi mest áhersla lögð á að kanna möguleika á förgun í útlöndum, annaðhvort í Noregi eða Þýskalandi. Á árunum 2016-2017 var rætt bæði við íslensk og norsk stjórnvöld, auk þess sem farið var í skoðunarferð til Noregs. Niðurstaðan var sú að ekki væri mögulegt að senda efnið þangað. Einnig kom í ljós að ekki kæmi til greina að flytja efnið til Þýskalands. Í kjölfarið hófst frekari greining á öðrum valkostum í samráði við Geislavarnir ríkisins þar sem aukin áhersla var lögð á að útfæra lausn hérlendis. Þegar hér var komið sögu hófust jarðhræringar og eldgos á Reykjanesskaga, sem hindruðu gott aðgengi að svæðinu um tíma og breyttu jafnframt forgangsröðun verkefna innan fyrirtækisins þar sem bregðast varð við aðsteðjandi náttúruvá. Urðunarstaður ekki til Að mati HS Orku kemur ekki til greina að keyra efnið á urðunarstað á Íslandi og farga efninu þar eins og upphaflega var til skoðunar. Ástæðan sé sú á Íslandi hefur ekki verið skilgreindur urðunarstaður þar sem leyfilegt er að farga efni sem gefur frá sér geislun. Áður var til skoðunar að flytja efnið til urðunar á Álfsnesi, sem er þróaðasti urðunarstaðurinn hér á landi, en hann hefur ekki starfsleyfi til að taka á móti efninu. Eftir ítarlegri skoðun á kostunum metur HS Orka það sem aðalvalkost að geyma útfellingarnar á athafnasvæði fyrirtækisins á Reykjanesi. Er þá tekið tillit til þess að á hverju ári safnist u.þ.b. 0,3-4 rúmmetrar af útfellingum sem þurfi að geyma og sömuleiðis til helmingunartíma efnanna, en einhver virkni muni mælast í því í allt að 150-200 ár. Staðbundin geymsla sé talin öruggasta leiðin til að lágmarka hættu á að geislavirk efni berist í jarðveg, lífríki eða grunnvatn á svæðinu. Tvær útfærslur Tvær útfærslur eru taldar koma til greina. Önnur er að safna útfellingunum saman og geyma þær í lokuðum ílátum í kjallara skiljustöðvarinnar á athafnasvæði HS Orku. Rýmið sem útfellingarnar verði geymdar í verði eingöngu notað til að geyma geislavirka efnið. Aðeins ákveðnir aðilar, sem hafi hlotið sérstaka þjálfun, muni hafa aðgang að rýminu. Hin útfærslan feli í sér að útfellingum sem innihaldi náttúrulega geislavirkni sé safnað saman og þær steyptar inn í lokað rými í kjallara skiljustöðvarinnar. Þá sé ekki þörf á vöktun útfellinganna sem hafi verið steyptar inn í rýmið. Slík útfærslu hafi m.a. verið notuð í Noregi. Í skýrslunni er einnig fjallað um þann kost að senda úrganginn úr landi til förgunar. HS Orka vilji ekki útiloka að á það verði reynt seinna meir að flytja efnið til útlanda og ef það yrði raunin verði fylgt þeim alþjóðlegum samningum sem kunni að eiga við um flutning geislavirkra útfellinga um hafið. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Vilja Danann burt Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Óvissa með leikmann Chelsea Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Framleiðslan sögð hefjast fyrr en áætlað var „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Vilja Danann burt Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Óvissa með leikmann Chelsea Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Andrew laus en enn til rannsóknar Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article