Verð á veitingastöðum í Bandaríkjunum hefur farið hækkandi undanfarin misseri en þrátt fyrir það eru margir sem sækjast enn í skyndibita. Samkvæmt nýrri rannsókn frá Morning Consult sækjast um 40% viðskiptavina í slíkan mat eftir vinnu vegna ofþreytu. Stærsti hluti aðspurðra nefndi þreytu sem ástæðu en þar á eftir, eða um 35%, sögðust vilja eitthvað ódýrt og mettandi. Rannsóknin sýnir einnig að 58% neytenda á skyndibitastöðum í Bandaríkjunum eru meðlimir Z-kynslóðarinnar og þúsaldarkynslóðarinnar. Niðurstöðurnar virðast einnig endurspegla vinnumálarannsókn frá Aflac 2025-2026 sem sýndi fram á að 80% bandarísks fólks á vinnumarkaði finni fyrir streitu vegna fjárhagserfiðleika og framtíðaróvissu. Sjá einnig Langflestir hættir að borða á staðnum Samkvæmt Vinnumálastofnun Bandaríkjanna fá fullorðnir Bandaríkjamenn á aldrinum 35-44 ára aðeins 3,8 klukkutíma að meðaltali í frítíma á dag. Um þriðjungur heimsókna á skyndibitastaði kemur jafnframt frá þeim sem eru á leið heim úr vinnu. Fjölverkavinna er einnig talin önnur ástæða fyrir skyndibitapöntunum en 81% segjast nýta heimsendingarþjónustu til að geta sinnt öðrum verkefnum á meðan. Um 40% þeirra eru foreldrar sem segjast borða á meðan þeir horfa á þætti, klára verkefni eða svæfa börnin.