Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Auður og áhrif í höndum þeirra elstu

Read Full Article →

Á undanförnum áratugum hafa eldri kynslóðir í Bandaríkjunum safnað til sín sífellt meiri auði og áhrifum og á það við bæði í efnahagslífi og í stjórnmálum. The Atlantic birti nýlega grein sem segir að þessi þróun hafi aukið áhyggjur af vaxandi ójöfnuði milli kynslóða. Árið 1989 áttu Bandaríkjamenn yfir 55 ára aldri um 56% af öllum auði í landinu. Í dag er það hlutfall komið í 74% og hefur sambærilegt eignarhlutfall þeirra sem eru yngri en 40 ára sömuleiðis dregist saman úr 12% í um 6,6%. Þróunin skýrist að hluta til af lýðfræðilegum breytingum en heildarhlutfall eldri borgara í Bandaríkjunum hefur hækkað. Eignamyndum hjá þessum hópi hefur hins vegar vaxið mun hraðar en hjá yngri kynslóðum. Sú þróun á sérstaklega við um fólk sem er eldra en 75 ára. Árið 1983 var eignastaða þeirra sem voru eldri en 75 ára örlítið meiri en meðaleignastaða Bandaríkjamanna. Árið 2022 var eignastaðan þeirra hins vegar orðin 55% hærri. Sjá einnig Bækur: Algebra of Wealth Almanna- og heilbrigðistryggingar áttu stóran þátt í að bæta stöðu eldri borgara og hjálpuðu við að draga úr fátækt. Eldri kynslóðir nutu einnig góðs af fasteignakaupum á lægri og föstum vöxtum og hefur virði þeirra fasteigna stóraukist á undanförnum áratugum. Yngri kynslóðir standa hins vegar frammi fyrir mun erfiðari fasteignamarkaði. Í dag kostar meðalíbúð í Bandaríkjunum fimmfalt meira en meðalárslaun, samanborið við 3,5-falt hlutfall á níunda áratugnum. Eldri kynslóðir hafa einnig nýtt sér stjórnmál til að tryggja sér betri stöðu á markaðnum. Til að byrja með er meðalaldur bandarískra öldungadeildarþingmanna 65 ár og eru dæmi um að stjórnmálamenn sitji við embætti fram yfir nírætt. Þessi hópur hefur einnig verið duglegastur við að koma í veg fyrir uppbyggingu nýrra íbúða á skiplagsfundum í Bandaríkjunum. Árið 2019 var birt rannsókn eftir stjórnmálafræðingana Katherine Levine Einstein, Maxwell Palmer og David Glick þar sem deiliskipulagsfundir í Boston voru teknir fyrir. Niðurstöðurnar sýndu að flestir sem sóttu fundina og mótmæltu byggingarframkvæmdum voru langtímahúsnæðiseigendur sem komu í veg fyrir uppbyggingu til að halda verðmæti sinna eigna háu en á kostnað yngri kynslóða sem vildu komast inn á fasteignamarkað.

Share this article