- What: Discussion in Iceland's parliament on the rise of fraud rings over recent years.
- Impact: Potential regulatory and illegal activity concerns.
Innlent | mbl | 23.2.2026 | 21:55 Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Liðsfélagar komu af stað svæsinni kjaftasögu um Söru Læknirinn sagði nei þegar hún tilkynnti óléttuna Mætti í fýlu á EM því kærastan var ekki valin Upplifði mjög erfiða tíma í Þýskalandi Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu » Fleiri tengdar fréttir Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins var upphafsmaður að umræðu á Alþingi fyrir helgi um skýrslu dómsmálaráðherra um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Hann stóð fyrir sambærilegri umræðu fyrir átta árum. Skiptist þá á orðum við annan ráðherra. Það eina sem virðist hafa gerst á þessum tíma er að skipulögðum glæpahópum hefur fjölgað úr tíu í tuttugu. Karl Gauti er gestur Dagmála í dag, þar sem hann ræðir stöðuna í baráttunni við skipulagða glæpahópa. Hann hóf umræðuna á Alþingi með því að vitna í varnaðarorð frá lögreglunni, sem komu fram í fyrstu skýrslu löggæsluaðila um skipulagða glæpastarfsemi. Sú skýrsla var gefin út árið 2008 og þá þegar var talin mikil þörf á að bregðast við. Fjölmargar skýrslur frá greiningardeild hafa komið fram um nauðsyn þess að bregðast við. Árið 2019 kvað við harðari tón frá greinardeild og var þar talað um gríðarlega hættu á þessu sviði, af hálfu lögreglu. Kemur úr lögreglunni Karl Gauti þekkir vel til þessara mála og hefur gegnt fjölmörgum stöðum innan lögreglunnar áður en að hann tók sæti á Alþingi. „Ég kem úr lögreglunni og ákvað því að efna til þessarar umræðu,“ segir Karl Gauti í þættinum og vitnar þar til umræðunnar fyrir átta árum. Hann heldur svo áfram; „Síðan hefur ekkert gerst neitt stórkostlegt í þessu. Eina sem hefur gerst er að þeim hefur fjölgað þessum hópum. Tvöfaldast frá 2017 og fjórfaldast frá 2008. Þess vegna hef ég áhyggjur af því... Nei ég verð nú kannski ekki á þingi eftir átta ár, að eftir átta ár verði kannski komnir fjörutíu hópar. Þá er nú kannski til lítils unnið í þessu löggæslustarfi.“ Karl Gauti tók sem dæmi varnaðarorð lögreglunnar 2008. „Þar var bent á að það þyrfti að tala um þetta hispurslaust, þarna 2008 og að þetta væri alvarlegt.“ Hann viðurkennir að lítið hafi komið út úr þeirri umræðu sem fór fram fyrir helgi en þó það að allir sem tóku til máls voru á þeirri skoðun að efla þyrfti aðgerðir á þessu sviði. Vissulega koma margar tillögur fram í skýrslu ráðherra, Öruggara Ísland , um aðgerðir sem stefnt er að því að ráðast í. Og hvað gera menn? „Það er auðvitað sláandi að við séum ennþá á miklu verri stað núna en þá,“ segir hann og vitnar til varnaðarorða frá því fyrir átján árum. „Samt er lögreglan búin að vara við þessu í fjölmörgum skýrslum. 2008, 2015, 2017, 2019, 2021 og 2025. Alltaf varað við uppgangi þessari hópa.“ Hann kemur svo sjálfur með næstu spurningu og svarar henni. „Og hvað gera menn? Menn einhvern veginn sitja með hendur í skauti og aðhafast ekkert. Auðvitað var Alþingi á þeim tíma skipað svolítið öðruvísi heldur en núna.“ Hann segist sannfærður um að þingið núna sé í miklum færum að styðja við góðan vilja dómsmálaráðherra í þessum efnum. Karl Gauti segir að það hafi einmitt verið tilgangur með umræðunni að hvetja ráðherra til að koma með breytingar á lögum til styrkja heimildir lögreglu og til þess að auðvelda brottvísun þessara aðila með það fyrir augum að þessum uppgangi ljúki einhvern tíma. Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur fyrir áskrifendur Morgunblaðsins og hægt að nálgast hann með því að smella á linkinn hér að neðan. Glæpahóparnir 20 eftir viðvaranir í 18 ár Tengdar fréttir Dagmál Liðsfélagar komu af stað svæsinni kjaftasögu um Söru Læknirinn sagði nei þegar hún tilkynnti óléttuna Mætti í fýlu á EM því kærastan var ekki valin Upplifði mjög erfiða tíma í Þýskalandi Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reif hatt og hárkollu af áhrifavaldi í beinni Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum Katrín stal senunni í gömlum kjól Sesko hetjan í Liverpool Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Nýjast á mbl.is » Reif hatt og hárkollu af áhrifavaldi í beinni Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum Katrín stal senunni í gömlum kjól Sesko hetjan í Liverpool Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat