Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ikea-bræður hafa betur gegn Reitum fyrir dómi

Read Full Article →

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur sýknað Skefjar ehf. af kröfu Reita um greiðslu vegna vatns­tjóns í húsnæði að Lauga­vegi 182. Reitir kröfðust þess að Skefjar greiddu 615.427 krónur, meðal annars vegna sjálfsábyrgðar í hús­eig­enda­tryggingu, en dómurinn féllst ekki á kröfuna og dæmdi Reiti jafn­framt til að greiða Skefjum 1,1 milljón króna í máls­kostnað. Skefjar eru í endan­legri eigu svo­nefndra IKEA-bræðra, Jóns Pálma­sonar og Sigurðar Gísla Pálma­sonar. Deilt um orsök lekans Vatns­tjónið kom upp 17. apríl 2022 þegar leigu­taki á 3. hæð til­kynnti að vatn hefði flætt inn á hæðina. Reitir héldu því fram að viðbragðsaðilar hefðu rakið leka að bilun í inn­byggðu blöndunar­tæki í leigurými Skefja á 4. hæð og að vatn hefði lekið þaðan niður á 3. hæð og valdið um­tals­verðu tjóni. Ikea- bræður mót­mæltu því hins vegar að það væri sannað hvað hefði valdið vatns­tjóninu. Reitir sögðust hafa fengið tjónið bætt úr hús­eig­enda­tryggingu sinni hjá Sjóvá, að frá­dreginni sjálfsábyrgð, og kröfðust þess að Skefjar bæru þann kostnað auk um­sjónar- og út­skriftar­gjalda. Í dóminum er rakið að ágreiningur um sama tjón hafi áður komið til kasta dómstóla í öðru máli. Í þeirri niður­stöðu hafi meðal annars verið komist að því að ekki væri sannað að aðilar hefðu samið um að Skefjar gætu nýtt hús­eig­enda­tryggingu Reita gegn því að greiða sjálfsábyrgð. Í þessu máli taldi dómurinn að ekki væri unnt að taka upp að nýju at­riði sem þegar hefði verið leyst úr með bindandi hætti í fyrra málinu, meðal annars um túlkun á leigu­samningsákvæðum og meint sam­komu­lag um sjálfsábyrgð. Ekki fjö­l­eignar­hús og saknæmi ekki sannað Reitir vísuðu meðal annars til reglna fjö­l­eignar­húsa­laga í mála­til­búnaði sínum, en dómurinn hafnaði því og benti á að Reitir væru einir eig­endur hússins og því væri um­rædd fast­eign ekki fjö­l­eignar­hús í skilningi laganna. Þá reyndu Reitir að byggja kröfuna á al­mennri skaða­bótaábyrgð. Dómurinn taldi hins vegar að ekki hefði verið sýnt fram á saknæma og ólög­mæta hátt­semi af hálfu Skefja varðandi viðhald eða um­hirðu blöndunar­tækisins, og að um hefði verið að ræða skyndi­legan at­burð sem félli undir hús­eig­enda­tryggingu. Skortur á sundur­liðun vó þungt Eitt af því sem dómurinn lagði sér­staka áherslu á var að tjón sem bætt var úr tryggingu virtist að mestu hafa orðið á 3. hæð – utan leigurýmis Skefja á 4. hæð – en engin sundur­liðun lægi fyrir um tjón á hvorri hæð fyrir sig. Reitir bæru hallann af þeim sönnunar­skorti. Með vísan til alls framan­greinds voru Skefjar sýknuð af kröfum Reita og Reitir dæmdir til að greiða máls­kostnað.

Share this article