Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

11 milljarðar fyrir Ikea á Íslandi

Read Full Article →

Fari ehf., félag Jóns Pálmasonar, hagnaðist um 22.807 milljónir króna á rekstrarárinu sem lauk 31. ágúst 2025. Hagnaður ársins er að mestu leyti tilkominn vegna sölu Jóns og bróður hans, Sigurðar Gísla Pálmasonar, á rekstri Ikea í Eystrasaltsríkjunum. Eignarhaldsfélagið Hof, sem er í jafnri eigu Jóns og Sigurðar Gísla, átti 57% hlut í rekstrarfélagi Ikea í Eystrasaltsríkjunum. Þá áttu bræðurnir hvor um sig 20% beinan hlut í rekstrarfélaginu. Eignarhaldsfélagið Hof seldi einnig á árinu 100% hlut í Miklatorgi ehf. og Urriðakoti ehf., sem halda utan um rekstur Ikea á Íslandi, til Fara. Samkvæmt ársreikningi Fara nam kaupverðið 11.135 milljónum króna. Eigið fé Fara nam 37.834 milljónum, þar af var óráðstafað eigið fé 25.380 milljónir. Stjórn Fara leggur til að tveir milljarðar verði greiddir í arð vegna rekstrarársins. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article