Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með mótorhjólakeðju

Read Full Article →

Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn var sakfelldur fyrir að berja annan mann í andlitið með mótorhjólakeðju. Sá sem fyrir árásinni varð hlaut skurð á hvirfli og vægan heilahristing. Árásarmaðurinn sagðist ekkert muna sökum fíkniefnaneyslu þegar þetta gerðist og kærasta hans sagði manninn sem fyrir árásinni varð hafa dottið. Lýsing mannsins og greining á áverkum þótti þó sýna fram á árásina. Refsingin er skilorðsbundin þar sem sá dæmdi hefur verið að reyna að snúa lífi sínu við og haldið sig frá fíkniefnum, að því er fram kemur í dóminum. Af borði dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur.RÚV

Share this article