Íslenska krónan styrktist nokkuð hressilega í gær og hefur gengi krónunnar gagnvart evru ekki verið sterkara það sem af er ári. Sérfræðingar á mörkuðum telja gengisstyrkingu gærdagsins megi rekja til fregna af því að ísfirska fyrirtækið Kerecis muni greiða 40 milljarða skatt í ríkissjóð Íslands vegna kaupa danska móðurfélagsins, Coloplast, á hugverkaréttindum úr dótturfélaginu. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis og nú framkvæmdastjóri hjá Coloplast, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að eingreiðslan muni fara fram í haust. Coloplast hefur heimild samkvæmt lögum til þess að dreifa greiðslunni yfir allt að sjö ára tímabil en samkvæmt árshlutareikningi var tekin ákvörðun um að nýta hana ekki. Krónan hefur á árinu styrkt sig um rúm 2% gagnvart evrunni og hefur evran farið úr 147 krónum í 144 krónur á tímabilinu. Gengi evrunnar féll úr 145 krónum í 144 krónur í gær eftir að fregnir bárust af yfirvofandi greiðslu Kerecis. Krónan hefur einnig styrkt sig gagnvart Bandaríkjadal á árinu og hefur dalurinn farið úr 125 krónum í 122 krónur sem samvarar um 2,4% styrkingu. Sé horft á síðastliðið ár hefur krónan styrkt sig um 12% gagnvart Bandaríkjadal og hefur dalurinn farið úr 139 krónum í 122 krónur.