Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Colop­last lækkar bók­fært virði Kerecis um 57 milljarða

Read Full Article →

Colop­last hefur lækkað væntingar sínar til Kerecis enn frekar og gerir nú ráð fyrir að vöxtur félagsins verði enginn á rekstrarárinu 2025/26. Þetta kemur fram í af­komu­viðvörun sem félagið birti í gærkvöldi, þar sem segir að bati á bandarískum markaði utan sjúkra­húsa hafi reynst hægari en áður var gert ráð fyrir eftir breytingar á endur­greiðslum úr Medi­care-kerfinu. Sam­kvæmt nýjum for­sendum gerir Colop­last ráð fyrir að vöxtur Kerecis verði um 0 pró­sent á árinu, en áður hafði félagið miðað við um 10 pró­senta vöxt. Jafn­framt er nú gert ráð fyrir að fram­legð Kerecis verði nær engin, en áður var miðað við að hún yrði í tveggja stafa tölu. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Colop­last lækkar væntingar sínar til Kerecis. Við upp­gjör fyrsta árs­fjórðungs hafði félagið þegar fært vaxtar­horfur niður úr um 25 pró­sentum í um 10 pró­sent. Nú hefur þeirri spá verið hnikað enn neðar, niður í 0 pró­sent. Í til­kynningunni kemur fram að Kerecis hafi átt undir högg að sækja á öðrum árs­fjórðungi. Vöxtur félagsins var enginn og fram­legðin sömu­leiðis engin. Colop­last rekur það til veru­legrar röskunar á sölu eftir breytingar á endur­greiðslum í bandaríska kerfinu fyrir með­ferðir sem veittar eru utan sjúkra­húsa. Félagið tekur þó fram að vöxtur innan sjúkra­húsa hafi áfram verið góður, þótt þar hafi aðeins hægt á miðað við fyrri fjórðunga. Áhrifin af veikara gengi Kerecis eru orðin það mikil að Colop­last hefur jafn­framt lækkað heildar­horfur sínar fyrir sam­stæðuna. Nú er gert ráð fyrir 5 til 6 pró­senta vexti í stað um 7 pró­senta áður. Þá hefur félagið einnig lækkað væntingar um vöxt rekstrar­hagnaðar úr um 7 pró­sentum í um 5 pró­sent. Sam­hliða þessu hefur Colop­last fært niður virði Kerecis í bókum sínum um 3 milljarða danskra króna, sem samsvarar um 57 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins. Eftir niðurfærsluna nemur bók­fært virði Kerecis um 6 milljörðum danskra króna, saman­borið við um 9 milljarða áður. Fram kemur að niðurfærslan hafi ekki áhrif á sjóð­streymi. Skýringar á vandanum komu fram í pósti sem sendur var starfs­fólki Kerecis í febrúar. Þar sagði að tvö at­riði hefðu vegið þyngst, annars vegar breytingar á endur­greiðslum á bandaríska markaðnum utan sjúkra­húsa og hins vegar fram­leiðnitap sem fylgdi nýju skipu­lagi og aukinni samþættingu við Colop­last. Sjá einnig Colop­last lækkar væntingar til Kerecis á árinu Í póstinum kom fram að um fimmtungur tekna Kerecis kæmi frá þessum hluta bandaríska markaðarins, þar sem al­ríkis­trygginga­kerfið Medi­care greiðir fyrir með­ferðina. Þar var jafn­framt bent á að vara félagsins, Shield, sem skilað hefði um 30 milljónum dala í árs­tekjur, væri ekki lengur rekstrar­lega hag­kvæm undir nýju endur­greiðslu­kerfi. Tekjur af þeirri vöru hefðu því í reynd fallið út. Stjórn­endur sögðu á sama tíma að Mari­Gen, önnur vara sem einnig skilaði um 30 milljónum dala í árs­tekjur, væri betur stað­sett í nýju kerfi. Vonir stóðu til að aukin sala á þeirri vöru, ásamt áfram­haldandi vexti innan sjúkra­húsa, myndi bæta upp tekju­fallið af Shield eftir því sem árið liði. Ný af­komu­viðvörun Colop­last bendir hins vegar til þess að sá viðsnúningur sé að taka lengri tíma en ráð var fyrir gert í febrúar. Auk breytinganna á endur­greiðslum bendir pósturinn til þess að breytingar á skipu­lagi og dýpri samþætting við Colop­last hafi einnig dregið úr af­kasta­getu á tíma­bili. Þrátt fyrir þetta lögðu stjórn­endur Kerecis áherslu á í febrúarpóstinum að þeir teldu vandann tíma­bundinn og að félagið ætti áfram að geta orðið helsti vaxtar­drif­kraftur Colop­last þegar fram í sækti. Nýjar horfur móðurfélagsins sýna þó að sú þróun hefur tafist veru­lega.

Share this article