Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Móðurfélag Kerecis ræður nýjan for­stjóra

Read Full Article →

Danska lækninga­vöru­fyrir­tækið Colop­last hefur ráðið Gavin Wood sem nýjan for­stjóra (CEO) sam­stæðunnar og tekur hann við starfinu 1. maí 2026. Stjórn félagsins leggur sér­staka áherslu á þekkingu Wood á bandaríska markaðinum sem sé mikilvægur fyrir félagið ef Colop­last ætlar að „komast aftur á rétt ról“ og auka verðmæta­sköpun fyrir hlut­hafa við ófyrir­sjáan­legar aðstæður á lykilmörkuðum. Wood kemur frá John­son & John­son Med­Tech, þar sem hann var yfir við­skiptum í Evrópu- og Miðaustur­löndum og bar ábyrgð á stórum rekstri og þúsundum starfs­manna. Sam­kvæmt um­fjöllun danska við­skipta­blaðsins Børsen taldi stjórn Colop­last að félagið þyrfti for­stjóra með miklum fram­kvæmda­krafti eftir að fyrr­verandi for­stjóri, Kristian Villum­sen, var látinn fara í fyrra eftir að langtíma verðmæta­sköpun þótti von­brigði. Sjá einnig Colop­last lækkar væntingar til Kerecis á árinu Eins og Við­skipta­blaðið greindi frá skilaði Colop­last 6% tekju­vexti á fyrsta árs­fjórðungi rekstrarársins 2025/26 (október–desember 2025) og EBIT jókst um 3% í föstu gengi, en tekjur í dönskum krónum stóðu í stað vegna gengisáhrifa. Rekstrar­hagnaður (EBIT) nam 1.850 milljónum danskra króna og EBIT-hlut­fallið var 26%, saman­borið við 27% á sama tíma í fyrra; Colop­last segir lækkunina að hluta til skýrast af tíma­bundnum áhrifum Kerecis. Þá lækkaði félagið væntingar sínar til ís­lenska sára­með­ferðar­fyrir­tækisins Kerecis fyrir núverandi rekstrarár vegna krefjandi rekstrar­um­hverfis eftir breytingar á endur­greiðslum í bandaríska Medi­care-kerfinu. Í til­kynningu Colop­last um ráðningu Wood kemur fram að Bandaríkin séu áfram einn mikilvægasti vaxtar­markaður félagsins og að nýr for­stjóri þurfi að stýra félaginu í gegnum óvissu bæði þar og í Kína, m.a. vegna fyrr­nefndra breytinga á bandarískum markaði sem tengjast Kerecis. Fær góðan bónus vegna danskra skatta Wood mun flytja til Dan­merkur þegar hann tekur við starfinu. Stjórn félagsins segist jafn­framt ætla að bjóða nýjum for­stjóra sér­stak­lega ríf­legan undir­skriftar­bónus til að mæta mögu­legu skatta­legu óhag­ræði við flutninginn til Dan­merkur. Guð­mundur Fer­tram Sigur­jóns­son, stofnandi Kerecis, situr í fram­kvæmda­stjórn Colop­last sem og leiðir rekstrar­eininguna Wound & Tissu­e Repair. Kerecis var keypt af Colop­last árið 2023. Sjá einnig Sá sem keypti Kerecis fær milljarð í starfs­loka­greiðslu

Share this article