Innlent | mbl | 25.2.2026 | 19:31 Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Hér má sjá Ólaf Þórsson (t.v.) og Hafþór Árna Hermannsson (t.h.). Á milli þeirra er svo Chloe Pomeroy. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Mikið líf og fjör hefur verið í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, í húsi Grósku á Vísindagörðum, í vikunni en þar hefur staðið yfir hið árlega NATO-hakkaþon. Hakkaþonið, sem ber í raun heitið TIDE Hackathon (NATO Digital Interoperability Challenge), er haldið árlega í mismunandi aðildarríkjum bandalagsins. Markmið hakkaþonsins er að þróa tæknilausnir fyrir raunverulegar áskoranir NATO á sviði öryggis- og varnarmála. Í ár tóku fulltrúar frá 19 bandalagsþjóðum þátt í keppninni og skiptast þeir í 33 lið. Vinna að netöryggismálum „Það gengur bara vel. Ég held að við séum með eitthvað hérna sem við getum verið stolt af og ég held að við fáum góða niðurstöðu út úr þessu í lokin,“ segir Chloe Pomeroy í samtali við blaðamann mbl.is í Grósku í dag en hún starfar sem gagnaverkfræðingur hjá kanadíska hernum. Chloe var, ásamt teymi sínu, að vinna að áskorunum tengdu netöryggi en sú áskorun var mótuð í samstarfi við íslensku netöryggissveitina CERT-IS. „Við erum að byggja upp kerfi þar sem netöryggissérfræðingar geta unnið saman að því að bregðast við atvikum eins og vefveiðum (e. phishing) eða DDoS-árásum eða þess háttar,“ segir hún. Kanadamenn þekkja kuldann Chloe er í sinni fyrstu Íslandsheimsókn og segist líka landið vel. „Það er alveg frábært, okkur var sagt að það yrði býsna kalt en við erum frá Kanada svo það er ekki vandamál.“ Þá segir hún keppnina ekki einungis gagnast NATO heldur einnig keppendum. „Við lærum að nota ný tæki og fáum líka góða innsýn í það sem önnur lönd og NATO vilja gera sem við getum svo nýtt í okkar lausnir. Og svo fáum við líka að eiga samskipti við fólk sem vinnur á mismunandi sviðum í mismunandi löndum og sjá hvað það er að gera,“ segir hún. Keppendurnir koma frá 19 bandalagsþjóðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Íslenskir nemar taka þátt Í hakkaþoninu í ár eru ellefu keppendur frá Íslandi, meðal þeirra eru félagarnir Hafþór Árni Hermannsson og Ólafur Þórsson en þeir stunda báðir hátækniverkfræðinám við HR. Það var bersýnilega nóg að gera hjá þeim félögum en þeir fundu þó nokkrar lausar mínútur fyrir spjall við blaðamann mbl.is. „Við erum sem sagt að reyna að þróa verkfæri sem á að draga úr dauðsföllum ef það verða einhver slys með því að flýta fyrir því hversu fljótt fólk kemst á réttan spítala og á rétta deild,“ segir Hafþór. Vinna að mastersverkefnum samtímis Þeir segjast báðir vera í óðaönn að vinna að mastersverkefni þessa stundina og hafi því ekki haft eins mikinn tíma og þeir vildu til að vinna verkefnið. „Við vorum kannski svolítið bjartsýnir þegar við skráðum okkur í þessa keppni,“ segja þeir. Ólafur segir það hafa verið sérstaklega merkilegt að hitta hina keppendurna. „Það eru fullt af herdeildum hérna og alls konar merkileg fyrirtæki. Það er bara magnað að fá innsýn inn í það hvernig svona verkefni eru unnin,“ segir hann. Hér hefur fólk unnið hörðum höndum alla vikuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hóflega bjartsýnir Haldið þið að þessi keppni geti haft mikil áhrif? „Já, ekki spurning. Ég held að hún hafi gert það seinustu ár, þeir sem vinna keppnina halda venjulega áfram þeirri vinnu sem fór hér af stað,“ segir Hafþór. „Og halda áfram að þróa lausnir fyrir NATO og fleiri stofnanir,“ botnar Ólafur svo. Eruð þið sigurvissir? „Nei. Það er allt of mikið af kláru fólki hérna, við erum bara einhverjir nemendur og erum ekki einu sinni forritarar,“ segir Hafþór. „Það væri mjög gaman en ég stórefast um það,“ bætir Ólafur við. Aðspurðir segja þeir það hafa staðið upp úr í vikunni að kynnast hinum keppendunum sem og fólkinu sem heldur utan um viðburðinn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Høiby neitar að ræða fjölskyldu sína Ótrúleg dramatík í Meistaradeildinni Fá rúmar 9 milljónir hvor Haukar í bikarúrslit annað árið í röð Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekið á Akkilesarhæl Rússahers Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Nota um 30 tæki og geta kallað út fleiri Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Fylgstu með veðrinu ganga yfir Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Versta veðrið á Reykjanesi og í Borgarfirði Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Høiby neitar að ræða fjölskyldu sína Ótrúleg dramatík í Meistaradeildinni Fá rúmar 9 milljónir hvor Haukar í bikarúrslit annað árið í röð Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangavörður grunaður um brot í starfi Versta veðrið á Reykjanesi og í Borgarfirði Útskrifaður af sjúkrahúsi Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Fylgstu með veðrinu ganga yfir Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Versta veðrið á Reykjanesi og í Borgarfirði Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu