Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti

  • What: An event in Iceland related to technical solutions.
  • Impact: Not specified.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.2.2026 | 21:21 Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Patrick Ratier og Magni Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki NATO-hakkaþonið hefur reynst afar áhrifamikið í gegnum tíðina að sögn Patricks Ratiers, deildarstjóra hjá umbreytingaherstjórn Atlantshafsbandalagsins (NATO ACT) í Norfolk, Virginíu í Bandaríkjunum. Þetta er nú tíunda árið sem hakkaþonið fer fram. „Fyrir tíu árum byrjaði úkraínskt teymi, í hakkaþoninu, að þróa lausn sem hefur reynst mjög vel á vígvellinum í dag og er í raun mikil velgengnisaga (e. success story). Delta-kerfið varð til í hakkaþoni og það er nú einnig mikið notað á vígvellinum,“ segir Ratier í samtali við blaðamann í Grósku í dag þar sem hakkaþonið fer fram. Þróa tæknilausnir fyrir raunverulegar áskoranir Hakkaþonið fer fram í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, í húsi Grósku á Vísindagörðum, dagana 23. til 27. febrúar 2026, í samstarfi við Utanríkisráðuneytið, Háskóla Íslands, Vísindagarða og Klak Icelandic Startups. Hakkaþonið, sem ber í raun heitið TIDE Hackathon (NATO Digital Interoperability Challenge), er haldið árlega í mismunandi aðildarríkjum bandalagsins. Markmið hakkaþonsins er að þróa tæknilausnir fyrir raunverulegar áskoranir NATO á sviði öryggis- og varnarmála. Í ár tóku fulltrúar frá 19 bandalagsþjóðum þátt í keppninni og skiptast þeir í 33 lið. Að þessu sinni voru kynntar þrjár áskoranir sem þátttakendur gátu valið úr að leysa, tengdar gervigreind, netöryggi og skráningu særðra á átakasvæðum. „Hver áskorun hefur verið skilgreind þannig að hún gæti verið nýtt í yfirstandandi verkefnum bandalagsins,“ segir Ratier. Í Grósku vinna keppendur hörðum höndum að leysa áskoranirnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Allir hrifnir af Íslandi Keppnin fer nú fram á Íslandi í fyrsta sinn. Ratier segir það afar ánægjulegt að keppnin sé haldin hérlendis, hann hafi sjálfur búið í Danmörku og hafi því komið oft í heimsókn. „Ég var líka hluti af teyminu sem kom því í kring að keppnin yrði haldin hér svo ég er mjög ánægður að það hafi raungerst,“ segir hann. „Veðrið var kannski aðeins betra seinustu helgi en allir eru svaka hrifnir af landinu. Mér finnst þetta einstakt land sem býr yfir einstöku andrúmslofti og ég er ánægður að geta kynnt það fyrir keppendunum,“ bætir hann við. Fengu ráðgjöf í framkomu Ratier segir erfitt að meta meðan á keppni stendur hversu vel lausnirnar muni reynast, en að viðbrögð styrktaraðila, sem að keppninni koma, hafi verið afar jákvæð. „Aðalmarkmiðið er að fá lausnir sem hægt er að nýta. Þetta snýst ekki bara um fallega kynningu heldur raunverulegar niðurstöður sem hægt er að nýta áfram,“ segir hann. Úrslitin fara fram á föstudag þar sem liðin kynna verkefni sín fyrir dómnefnd. Ratier segist spenntur fyrir lokadeginum og nefnir að liðin hafi fengið ráðgjöf frá Klak um það hvernig best væri að kynna hugmyndirnar. „Ég vona að þeir sem komist í úrslit hafi tekið ráðin til sín og verði með flottar kynningar,“ segir Ratier. Íslensk áskorun í ár Ein áskorana keppninnar í ár, eins og áður hefur komið fram, snýr að netöryggi en sú áskorun var unnin í samstarfi við íslensku netöryggissveitina CERT-IS. „Verkefnið felur í sér að aðstoða sérfræðinga sem eru að vinna við atvikameðhöndlun, eins og við gerum dagsdaglega hjá CERT-IS með því að beita til dæmis sjálfvirknivæðingu og gervigreind,“ segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, í samtali við blaðamann í Grósku í dag. „Þetta er eitthvað sem að við vonumst til að geti síðan bara nýst beint inn í okkar starf og fyrir önnur sambærileg teymi sem eru hluti af aðildarríkjunum,“ bætir hann við. Keppnin er nú haldin á Íslandi í fyrsta sinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tækifæri fyrir Ísland Sérðu tækifæri í því fyrir Ísland að halda keppnina hér? „Klárlega, þetta er virkilega öflugt fyrir íslenskt teymi að ná tengingu við aðra sérfræðinga frá hinum aðildarríkjunum. Það eru aðilar hérna bæði frá stórum einkafyrirtækjum en einnig úr opinbera geiranum og þetta getur verið flottur stökkpallur fyrir íslenska aðila og íslensk teymi til að koma á framfæri sínum tæknilausnum,“ segir Magni. Að lokum segir hann keppnina hafa gengið mjög vel hingað til og kveðst spenntur fyrir áframhaldandi samstarfi með NATO. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur - KA/Þór, staðan er 22:17 Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Skera upp herör gegn skipulögðum glæpum Náinn bandamaður Maduro segir af sér Telja Háafoss geta orðið næsta Stuðlagil Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Sterk skilaboð frá Tusk „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Tekið á Akkilesarhæl Rússahers Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Valur - KA/Þór, staðan er 22:17 Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Skera upp herör gegn skipulögðum glæpum Náinn bandamaður Maduro segir af sér Telja Háafoss geta orðið næsta Stuðlagil Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sterk skilaboð frá Tusk Grapevine í kröggum Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article