Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja

  • What: A report suggests Iceland could become a target for foreign state actors.
  • Impact: Highlights increased cybersecurity risks for Iceland due to geopolitical tensions.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.3.2026 | 13:05 Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Aukinn hraði og flækjustig fjölþáttaógna þýða að brýnna er en áður að lögregla geti starfað við allar aðstæður þar á meðal þær sem erfitt er að sjá fyrir eða teljast ólíklegar á friðartímum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Ágætt að verið sé að efla samskipti ríkjanna » Fleiri tengdar fréttir Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO) er, ásamt varnarsamningnum við Bandaríkin, helsta stoðin í ytri vörnum landsins. Aftur á móti felur breytt öryggisumhverfi og aukin alþjóðleg spenna í sér að aðildin getur einnig haft þau áhrif að Ísland verði skotmark óvinveittra ríkja sem beita fjölþáttaaðferðum í því skyni að veikja innra öryggi ríkisins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem ber heitið Innra öryggi Íslands 2026 . Lögreglan er að jafnaði fyrst til að bregðast við slysum, afbrotum eða neyðarástandi vegna hamfara og gegnir þannig lykilhlutverki varðandi innra öryggi. Hún hefur einnig lögbundnar skyldur til að takast á við utanaðkomandi ógnir sem fela ekki í sér beinan hernað, þar á meðal fjölþáttaógnir sem snerta samfélagslega virkni, innviði og öryggi æðstu stjórnar, að því er fram kemur í skýrslunni. Öryggi ríkisins byggir á seiglu þess Aukinn hraði og flækjustig fjölþáttaógna þýða að brýnna er en áður að lögregla geti starfað við allar aðstæður, þar á meðal þær sem erfitt er að sjá fyrir eða teljast ólíklegar á friðartímum. Í núverandi spennu- og öryggisumhverfi telur greiningardeildin mikilvægt að viðbúnaður lögreglu takmarkist ekki við hefðbundið viðbragð við einstökum atvikum eða starfsemi opinberra stofnana heldur taki mið af samfélaginu í heild og þeirri staðreynd að öryggi ríkisins byggir á seiglu þess. Seigla felst ekki í aukinni valdbeitingu eða víðtækari heimildum stjórnvalda gagnvart almenningi heldur í upplýstu og reiðubúnu samfélagi sem er fært um að bregðast við breyttum aðstæðum. Æðsta stjórn ríkisins verður þannig að geta rækt hlutverk sitt þrátt fyrir hótanir, áreitni eða annan óeðlilegan þrýsting, segir enn fremur í skýrslunni. Seigla felst ekki í aukinni valdbeitingu eða víðtækari heimildum stjórnvalda gagnvart almenningi heldur í upplýstu og reiðubúnu samfélagi sem er fært um að bregðast við breyttum aðstæðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ógnir við mikilvæga innviði og þróun fjölþáttaógna Aukin óvissa í alþjóðlegu öryggisumhverfi, þar á meðal vaxandi spenna milli ríkja, ógnir við mikilvæga innviði og þróun fjölþáttaógna, hefur sýnt að áhrif alvarlegra atburða takmarkast sjaldnast við hernaðarlega sviðið. Afleiðingar slíkra atburða geta komið fram í röskun á daglegu lífi, truflunum á grunnþjónustu, upplýsingaóreiðu og aukinni óvissu meðal almennings. Þá skipti máli að almenningur hafi skilning á eðli ógnanna og viti hvaða viðbrögð séu viðeigandi án þess að ótti eða óreiða nái yfirhöndinni. Þá er markmið löggæsluyfirvalda m.a. að styrkja traust og miðla upplýsingum, hvort sem um er að ræða náttúruvá, tæknilega bilun, alvarleg ofbeldisverk eða afleiðingar vopnaðra átaka utan landsteinanna að sögn skýrsluhöfunda. Almennir borgarar virkir þátttakendur í viðbúnaði Nágrannaríki Íslands, Svíþjóð og Finnland, hafa lagt áherslu á heildstæða nálgun við öryggismál (sæ. total försvar eða e. whole of society approach) en þá eru almennir borgarar virkir þátttakendur í viðbúnaði og vörnum en ekki einungis þiggjendur þjónustu. Slík nálgun eflir seiglu samfélagsins og helst í hendur við skuldbindingar þriðju greinar Atlantshafssáttmálans, að mati sérfræðinga The Royal United Services Institute (RUSI), einnar elstu og virtustu hugveitu veraldar á sviði öryggismála. Þetta fyrirkomulag er í skýrslunni sagt draga úr álagi á lögreglu og aðrar viðbragðsstofnanir á fyrstu stigum atburða og þannig auka líkur á að viðbrögð verði samræmd, markviss og í samræmi við gildandi lög og mannréttindaákvæði. Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Ágætt að verið sé að efla samskipti ríkjanna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Elliði verðlaunaður í annað sinn Rannsókn sýnir rjúpu styggari á veiðitíma Leggja á ráðin um kjarnavopnasamstarf Flytja heim þúsundir strandaglópa Komu í veg fyrir árás á alþjóðaflugvöll í Katar Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Icelandair ágætlega varið fyrir hækkunum Eignir meira virði en bókhald sýnir Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Eignir meira virði en bókhald sýnir Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Elliði verðlaunaður í annað sinn Rannsókn sýnir rjúpu styggari á veiðitíma Leggja á ráðin um kjarnavopnasamstarf Flytja heim þúsundir strandaglópa Komu í veg fyrir árás á alþjóðaflugvöll í Katar Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair ágætlega varið fyrir hækkunum Loftárásir duga ekki einar og sér Sprengingar við sendiráð Bandaríkjanna í Ríad Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Eignir meira virði en bókhald sýnir Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article