Fæðingum í Japan fækkaði á síðasta ári og er það tíunda árið í röð sem það gerist. Alls komu 705.809 japönsk börn í heiminn, sem er samdráttur upp á 2,1 prósent milli ára. Í frétt AFP segir að þar með séu talin börn erlendra ríkisborgara búsettra í Japan, sem og börn japanskra ríkisborgara sem fæðast utanlands. Japönum fækkaði um hálft prósent milli ára. Þar búa nú tæplega 123 milljónir, sem er 580 þúsund færri en í febrúar í fyrra. Lýðfræðileg þróun er nokkuð áhyggjuefni þar í landi, þar sem fæðingartíðni er ein sú lægsta í heimi og meðalaldur stígur stöðugt. Sanae Takaichi forsætisráðherra sagði á þingi í síðustu viku að dvínandi fæðingartíðni og fólksfækkun sé neyðarástand sem fari hljótt en muni smátt og smátt grafa undan þrótti þjóðarinnar. Engu að síður leggur stjórn hennar áherslu á hertari innflytjendalöggjöf en vill frekar bæta aðstæður vinnandi fjölskyldufólks. Með sterkari efnahag væri hægt að snúa fólksfækkuninni við.