Sjálfsölum í Japan fer nú hratt fækkandi í Japan, meðal annars vegna verðbólgu og aukins skorts á vinnuafli. Drykkjar sjálfsölum hefur fækkað um 23% frá því að mest lét árið 1985 og eru nú um 2,2 milljónir talsins samkvæmt tölfræði samtaka framleiðenda sjálfsala í Japan. Í umfjöllun Financial Times segir að mikil útbreiðsla sjálfsala hafi lengi þótt endurspegla ást þjóðarinnar á nýsköpun. Þrátt fyrir hærra verð hafi Japanir elskað þessar vélar vegna þæginda. Eftir viðvarandi verðbólgu síðustu þrjú árin séu neytendur hins vegar í auknum mæli að leita að ódýrari valkostum. Bent er á að vörur þekktra te- og kaffimerkja geti verið allt að 20% ódýrari í nærliggjandi dagvöruverslunum heldur en í sjálfsölum. DyDo, þriðji stærsti rekstraraðili sjálfsala í Japan, tilkynnti í þessum mánuði að hann hyggist fækka einingum um 7,5% eftir að hafa skilað mesta tapi frá stofnun félagsins. Félagið rekur í dag um 270 þúsund sjálfsala. Forstjóri DyDo sagði að reksturinn væri orðinn talsvert meira krejandi en félagið hafði búist við. Áhersla félagsins væri nú að stöðva blæðinguna. Á árinu 2024 voru aðeins 42 milljónir kassar af drykkjum seldir í gegnum sjálfsala, samanborið við 72 milljónir þegar salan náði hámarki árið 1997. Japan glímir einnig við mikinn skort á vörubílstjórum. Til marks um það hækkuðu laun bílstjóra um 7,1% árið 2024. Greinandi í japanska smásölugeiranum segir að sjálfsalar séu ekki jafn sjálfvirkir og þeir virðist vera. Rekstur þeirra krefjist áfram talsverðrar aðkomu fólks. Hann segir stóra vandamálið vera að ekki sé búið að stafvirknivæða birgðakerfi stórs hluta vélanna og því þurfi einstaklingar í mörgum tilfellum að mæta á staðinn til að kanna hvort búið sé að selja vörur í vélinni. Suntory, næst stærsti rekstraraðili sjálfsala í Japan, viðurkenndi að það væri áskorun að tryggja nægjanlegt vinnuafl. Hann bætti þó við að aukin starfvirknivæðing í birgðakerfi vélanna hefði dregið verulega úr vinnuálagi. Drykkjarvöruframleiðandinn Asahi Soft Drinks sagði til að bregðast við óhjákvæmilegum samdrætti á sjálfsalamarkaðnum væru rekstraraðilar að leggja aukna áherslu á að auka arðsemi hverrar vélar með því að greina betur staðsetningar og stækka vélarnar með það í huga að fylla þurfi sjaldnar á þær.