Innlent | Morgunblaðið | 26.2.2026 | 16:15 Minnir á hegðun ESB í Icesave-deilunni Carl Baudenbacher fv. forseti EFTA-dómstólsins og ráðgjafi ríkisstjórna Íslands og Marokkó í málefnum ESB. Hann hefur einnig verið þingum Breta og Svisslendinga til ráðgjafar um sömu mál. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Varar við inngöngu Íslands í ESB Kristrún: ESB þarf að taka mið af sérstöðu Íslands Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum „Vangaveltur eitt en staðreyndir annað“ Stjórnvöld stígi dansinn við ESB » Fleiri tengdar fréttir Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, varar við áformum íslenskra stjórnvalda um inngöngu í Evrópusambandið. Baudenbacher var forseti dómstólsins á árunum 2003-2017 en eftir að hann lét af störfum við dómstólinn starfaði hann m.a. sem ráðgjafi ríkisstjórna Íslands og Marokkó í málefnum ESB, auk þess sem hann veitti þingum Sviss og Bretlands ráðgjöf á sama sviði. Hann minnir Íslendinga á að framkvæmdastjórn ESB gerði Íslandi erfitt fyrir eftir hrun bankanna, með því að beita Íslandi þrýstingi til þess að samþykkja Icesave-samningana við Bretland og Holland. Það hefði þýtt að íslenska ríkið viðurkenndi ábyrgð á gjaldþroti einkabanka. Eins og lesendur Morgunblaðsins þekkja flestir hafnaði þjóðin samningunum og vann sögulegan sigur í málinu fyrir EFTA dómstólnum. Fordæmalaus aðkoma Baudenbacher segir framkvæmdastjórnina ekki hafa farið út fyrir valdheimildir sínar í málinu en að hjá því verði ekki litið að hún hafi þó að sjálfsögðu haft svigrúm til að ákveða nálgun sína á málið. „Framkvæmdastjórnin gat ekki höfðað mál gegn Íslandi samkvæmt tveggja stoða kerfi EES-samningsins. Það var Eftirlitsstofnun EFTA sem höfðaði málið. Ef ég man rétt tók framkvæmdastjórnin þó ekki aðeins þátt í málsmeðferðinni, heldur fór einnig í fyrsta skipti fram sem milligönguaðili. Framkvæmdastjórnin vildi sýna að hún tæki málið alvarlega. Margir sem fylgdust með málinu spáðu því að Ísland hefði farið í þrot ef það hefði tapað málinu fyrir EFTA-dómstólnum.“ Hann segir ómögulegt að segja til um hvernig dómstóll Evrópusambandsins hefði dæmt í Icesave-málinu, ef Ísland hefði staðið innan ESB á tíma fjármálahrunsins. „Allmargir sem fylgdust með málinu töldu að Ísland hefði tapað. Athygli vakti að breska fjármálapressan hrósaði EFTA-dómstólnum fyrir niðurstöðuna.“ Hann segir EES/EFTA-ríkin hafa haldið fullveldi sínu á sviðum á borð við gjaldmiðil, utanríkisviðskipti, utanríkisstefnu, landbúnað og sjávarútveg. „Bókun 9 um viðskipti með fisk og aðrar sjávarafurðir er mjög hagstæð fyrir Ísland og Noreg. Afgerandi kostir EES felast þó í því að EFTA-ríkin hafa eigin sjálfstæða eftirlitsstofnun (ESA) og sinn eigin sjálfstæða EFTA-dómstól. Þetta kemur skýrt fram þegar EES-samningurinn er borinn saman við þann samning sem naumur meirihluti svissnesku ríkisstjórnarinnar vill gera við ESB. Samkvæmt þeim samningi hefði framkvæmdastjórn ESB einhliða málshöfðunarrétt og dómstóll Evrópusambandsins, dulbúinn með formlegum gerðardómi, væri einráður um túlkun. Slíkt væri andstætt íslensku stjórnarskránni.“ Frændhygli og spilling Spurður um veikleika í umhverfi ESB með tilliti til smáríkis eins og Íslands rifjar Baudenbacher upp gagnrýni sem fram hefur komið innan úr ESB sjálfu. „Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, framkvæmdastjóri ESB og aðalsamningamaður sambandsins í Brexit-viðræðunum, Michel Barnier, sakaði forseta framkvæmdastjórnarinnar um einræðistilburði í bók sem kom út í júní 2025. Þann 28. maí 2025 birti bresk-írski blaðamaðurinn Mari Eccles grein í Politico undir yfirskriftinni „How the EU always gets away with it“. Þar var útbreiddri refsileysismenningu innan ESB lýst, sem einkennist af hneykslismálum á borð við frændhygli, spillingu og skorti á gagnsæi. Í júní 2025 kom einnig í ljós að árið 2021 höfðu yfir 7 milljarðar evra runnið frá framkvæmdastjórninni til frjálsra félagasamtaka á sviðum á borð við umhverfismál, málefni innflytjenda og rannsóknir. Einstök samtök fengu allt að 700.000 evrur til herferða eða málshöfðana gegn óvinsælum fyrirtækjum innan ESB. Fyrrverandi umboðsmaður ESB, Emily O’Reilly, hefur lýst æðstu embættismönnum í ráðuneyti von der Leyen sem „consiglieri“. Sá sem hefur séð þríleik Francis Ford Coppola Guðfaðirinn veit hvað „consiglieri“ er,“ segir hann, en til upplýsingar fyrir aðra er um að ræða nánasta ráðgjafa mafíuleiðtoga. Baudenbacher segir dómstól ESB hafa meira vald og meira svigrúm en nokkur annar dómstóll í Evrópu. „Í máli framkvæmdastjórnarinnar gegn Möltu seildist dómstóllinn inn í kjarna ríkisvalds aðildarríkis, án skýrrar lagastoðar: valdið til að ákveða hverjir geti öðlast ríkisborgararétt þess.“ Áhrif Íslands yrðu hverfandi í ESB Spurður út í fullyrðingar aðildarsinna um að ESB færi Íslandi aukinn efnahagslegan stöðugleika og pólitísk áhrif, segir Baudenbacher: „ESB stendur ekki vel efnahagslega. Leiðandi ríkið, Þýskaland, hefur lengi rekið stefnu um afiðnvæðingu, að því er virðist til að bjarga loftslagi jarðar, og Frakkland stendur enn verr. Evran er veikur gjaldmiðill. Pólitísk áhrif lands með um 400.000 íbúa yrðu hverfandi. Á móti myndi Ísland missa fullveldi sitt á sviði sameiginlegra stefna, sem og eigin eftirlitsstofnun (ESA) og EFTA-dómstól.“ Hann segir Evrópusambandið í slæmu standi í dag og útskýrir stöðuna nánar fyrir blaðamanni: „Stærsta vandamálið er öfgafull tilhneiging til reglusetningar og miðstýringar, og auðvitað lýðræðishallinn. Framkvæmdastjórnin leit áður á sig sem „verndara sáttmálanna“ en frá forsetatíð Juncker hefur hún aftur á móti litið á sig sem pólitískan þátttakanda. Þegar Juncker tók við embætti sagðist hann vilja pólitíska framkvæmdastjórn. Slík pólitísk væðing vill gjarnan verða á kostnað réttarríkisins. Innri markaðslöggjöf er aðeins framfylgt með alkvæðum hætti. Sem dæmi má nefna að ég bý í Lúxemborg en er oft á Ítalíu. Á Ítalíu eru lyfseðlar frá lækni í Lúxemborg ekki viðurkenndir. Ég lagði því fram kvörtun til framkvæmdastjórnarinnar og fékk ekki einu sinni svar.“ Upphafsskref ritskoðunar Þá segir hann aðildarríkinn ekki öll meðhöndluð jafnt. „Þýskaland og Frakkland hafa meiri rétt en önnur ríki. Við munum hvernig herra Macron og frú Merkel töfruðu fram núverandi forseta framkvæmdastjórnarinnar, Ursula von der Leyen, úr lausu lofti. Í staðinn varð frú Lagarde forseti Seðlabanka Evrópu. Frakkland hefur ávallt sloppið þegar kemur að fjármálum. Nú sjáum við hvert það hefur leitt.“ Baudenbacher segir framkvæmdastjórnina einnig hafa átt sérkennilegt samband við tjáningarfrelsi. „Lögin um stafræna þjónustu (Digital Services Act), sem eiga að berjast gegn upplýsingaóreiðu af hálfu vettvangsrekenda (platform operators), eru ekki sannfærandi í mínum huga. Sumir óttast að þetta séu upphafsskref ritskoðunar.“ Spurðu hvert hann helsta ráð sé til íslenskra stjórnvalda og almennings nú, svarar Baudenbacher: „Ég tilheyri kynslóð sem naut sjö ára latínunáms í menntaskóla. Leyfið mér að svara með rómverskum málshætti: 'Quidquid agis prudenter agas et respice finem' eða 'hvað sem þú gerir, gerðu það af hyggindum og hugsaðu það til enda'.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Varar við inngöngu Íslands í ESB Kristrún: ESB þarf að taka mið af sérstöðu Íslands Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum „Vangaveltur eitt en staðreyndir annað“ Stjórnvöld stígi dansinn við ESB » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Húsvíkingar daga lið sitt úr keppni Minnir á hegðun ESB í Icesave-deilunni Hætta við byggingu nýs unglingaskóla Eldarnir framlag Íslands Vill sjá sóknarmann Liverpool í herbúðum Real Madrid Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum Musk tók rússneska herinn úr sambandi: Hvað svo? Varar við inngöngu Íslands í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Eina tilboðið langt yfir áætlun Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Minntust Kjartans í Garðakirkju Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Nýjast á mbl.is » Húsvíkingar daga lið sitt úr keppni Minnir á hegðun ESB í Icesave-deilunni Hætta við byggingu nýs unglin