Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.2.2026 | 17:44 „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur telur það nánast út úr myndinni að Seðlabankinn lækki vexti á fyrri hluta þessa árs. Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ » Fleiri tengdar fréttir Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur segir verðbólgumælingu Hagstofunnar vera verri en flestir gerðu ráð fyrir. Hann segir mælinguna vonda á flestan hátt. Greint var frá því í morgun að tólf mánaða verðbólga mældist nú 5,2 prósent og stendur í stað á milli mánaða, þvert á spár greiningardeilda bæði Landsbankans og Íslandsbanka. Hjöðnun var spáð milli mánaða og að verðbólgan færi niður fyrir 5 prósent í febrúar. Reyndar hafði Reitun, þar sem Konráð er efnahagsráðgjafi, spáð því að verðbólga yrði 5,1 prósent, en mælingin er engu að síður verri en gert var ráð fyrir. „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir. Maður var farinn að óttast að þetta yrði raunin, til dæmis þegar maður sá nýjar tölur hjá verðlagseftirliti ASÍ um matarkörfuna og að hún hefði hækkað um 0,9%. Við gerðum ráð fyrir að það væri 0,3% hækkun í mælingavikunni og svo kom það á daginn að hækkunin var 0,9%.“ Frétt af mbl.is Verðbólgan stendur í stað þvert á spár Mælingin verri en tölurnar sýna Hann bendir á að í raun sé mælingin enn verri en tölur sýna þar sem Hagstofan hafi verið að leiðrétta villu frá því í janúar varðandi lækkun á bensínverði. „Ef villan hefði ekki verið í janúar hefði verðbólgan þá mælst minni og þá værum við að horfa upp á að verðbólguárstakturinn væri að hækka. Ýmsar aðrar tölur sýna að það eru miklar hækkanir víða. Útsölurnar ganga svolítið harkalega til baka, ívið meira en við gerðum ráð fyrir, sem er aftur vísbending um verðbólguþrýsting. Hækkanir eru heilt yfir miklar og liðir sem eru að hækka umfram 2,5% á ársgrundvelli, þeim er að fjölga,“ segir Konráð. „Þannig þetta er á flestan hátt vond mæling,“ bætir hann við. Þá bendir hann á að húsnæðisliðurinn sé ekki lengur að halda verðbólgunni uppi, nú togi hann á móti, sem og innflutt verðbólga. „Þetta segir þá mjög mikið um þennan almenna innlenda verðbólguþrýsting, hversu mikill hann er.“ Frétt af mbl.is Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Allir mælikvarðar séu að stíga upp Konráð telur að matarkarfan eigi mjög stóran þátt í því að mælingin sé jafn slæm og raun ber vitni, en þó virðist orsakavaldar vera á breiðum grunni. Allir undirliggjandi mælikvarðar fyrir verðbólgu séu að stíga upp. „Oft er talað um að þetta sé einstök hækkun á einskiptisliði, sem mér persónulega finnst að ætti að hverfa í umræðu um verðbólgu, af því að hver og ein hækkun verður bara einu sinni. Þetta gerist oft í stökkum en þær hafa alltaf verið til hækkunar, ekki til lækkunar, þær verðbreytingar og þá er það bara partur af verðbólgunni. En það er eiginlega ekki einu sinni hægt að horfa á eitthvað svoleiðis núna. Í desember að þá voru þetta einhverjar gjaldskrárhækkanir hjá Veitum og eitthvað svoleiðis. Þetta er meira en það.“ Konráð gerir ráð fyrir að verðbólga hjaðni eitthvað á næstu mánuðum, en ekki mikið. Samkvæmt spá Landsbankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 4,4 prósent í maí, en Konráð þykir það heldur bjartsýnt. „Miðað við hvernig þetta er að þróast núna erum við þeirrar skoðunar að hún fari ekkert undir 4% í ár. Þetta styður það því miður við það, þegar árið fer af stað með þessum verðhækkunarkrafti að að þá eru þær mælingar að fara að vera inni í árstaktinum það sem eftir er árs. Það svo vont að að verðbólguvæntingarnar eru svo langt frá markmiði, þær eru svo lausar og þá er svo mikil hætta að verðbólgan verði bara hálfpartinn svona sjálfnærandi og sé ekki að fara að lækka sem einhverju nemur,“ segir Konráð og bendir á að sé litið aftur í tímann hafi það verið vandamál lengi. Frétt af mbl.is Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Frétt af mbl.is Enn eykst atvinnuleysi Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Fjalla um meinta óánægju með störf Klopps Fær þriggja ára samning í Bandaríkjunum Kvika og stjórnendur lagðir í Landsrétti FH – Haukar kl. 18, bein lýsing Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullyrðingar standast ekki Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum ÁTVR í stefnumótun Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Smjörva skipt út á Landspítalanum Nýjast á mbl.is » „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Fjalla um meinta óánægju með störf Klopps Fær þriggja ára samning í Bandaríkjunum Kvika og stjórnendur lagðir í Landsrétti FH – Haukar kl. 18, bein lýsing Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Glerbrotum rigndi inn í bílinn Fært til lendingar í Keflavík á ný „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Musk tók rússneska herinn úr sambandi: Hvað svo? Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Smjörva skipt út á Landspítalanum

Share this article