Innlent | Morgunblaðið | 26.2.2026 | 22:00 Nýtt skólahús á Kleppjárnsreykjum Nýja skólahúsið er glæsilegt og blasir við frá þjóðvegi. Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Kennsla og starf hófst á dögunum í nýbyggingu Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Í skólanum eru 115 börn í 1.-10. bekk og koma þau víða frá úr uppsveitum Borgarfjarðar. Aðrar starfsstöðvar skólans eru á Hvanneyri og á Varmalandi og þar er yngri börnunum kennt en alls eru um 170 nemendur við skólann. Á Kleppjárnsreykjum er einnig starfræktur leikskólinn Hnoðraból. Nýbyggingin er alls 1.385 fermetrar og reist í stað eldra húss sem rífa þurfti vegna myglu. Skólahaldið hafði á síðustu árum meðal annars verið í lausum stofum og öðru bráðabirgðahúsnæði. Svo var tekið af skarið með nýbyggingu og framkvæmdir hófust árið 2024. Fyrsti hluti nýja hússins var tekinn í notkun í byrjun skólaárs og síðan hafa skrefin verið tekin. Kostnaður við framkvæmdir er um 1,3 milljarðar króna. „Við samkennum tveimur til þremur árgöngum og kennarar vinna í teymum. 1.-4. bekkur hafa tvær kennslustofur sem hægt er að opna á milli, rétt eins og 5.-7. bekkur. Auk þess eru minni rými þar sem hægt er vinna með einstaklinga eða smærri hópa,“ segir Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri. „Með því að rúmt sé um nemendur má skipta bekkjum upp í hópa eða nálgast starfið með fjölbreyttum kennsluháttum. 8., 9. og 10. bekkir eru í eldri hluta skólans en til stendur að endurhanna hann í næsta áfanga framkvæmda. Í nýja húsinu eru matsalur og bókasafn sem verða tekin í notkun á næstu dögum svo þetta er allt að smella. Börnin bíða svo spennt eftir nýrri skólalóð en framkvæmdir við hana hefjast í sumar en á svæðinu er góð íþróttaaðstaða og ágæt sundlaug.“ Alsæl með aðstöðu Helga Jensína lýsir málum svo að starf við grunnskóla, sem sveitarfélagið hefur metnað fyrir, sé mjög ánægjulegt. „Við erum alsæl með þessa aðstöðu og hefur það jákvæð áhrif á alla. Samfélagið stendur þétt að baki okkur,“ segir Helga Jensína, skólastjóri frá árinu 2018 og leiðtogi í 50 manna starfsliði. Skólastarf segir Helga að sé metnaðarfullt. Staðsetning starfsstöðva ráðist eðlilega af aðstæðum. Hvanneyri sé líflegt þorp þar sem eru ýmsar lykilstofnanir landbúnaðar. Þar er auk grunnskólans starfræktur leikskólinn Andabær. Á mið- og elsta stigi eru Hvanneyrarbörn alls um 40 og þau fara á morgnana með skólabíl að Kleppjárnsreykjum. Á Varmalandi í Stafholtstungum er leikskólinn Hraunborg auk grunnskóla. Þar eru börn frá Úkraínu, búsett á Bifröst, mjög áberandi í nemendahópnum samanber að fjölda fólks frá hinu stríðshrjáða landi var þar búinn samastaður í tilverunni. Og svo að lokum Kleppjárnsreykir; þorp í sveit þar sem landbúnaður, garðyrkja, þjónusta og svo auðvitað skólastarfið eru helstu atvinnuvegirnir og skapa viðurværi íbúanna. Kátt í kennslustund yngstu barnanna. Vel er að öllu búið í skólastarfinu og aðstaðan er í samræmi við allar helstu kröfur samtímans. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skagamenn lögðu Valsmenn á Akranesi Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Hjálpaði Pólverjunum að sigla sigrinum heim Norska Íslendingaliðið úr leik Kvæntur í 29 ár en deilir ekki rúmi með eiginkonunni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Kosningum flýtt í Danmörku Kostnaður við götuhreinsun eykst Fullyrðingar standast ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Glerbrotum rigndi inn í bílinn Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Skagamenn lögðu Valsmenn á Akranesi Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Hjálpaði Pólverjunum að sigla sigrinum heim Norska Íslendingaliðið úr leik Kvæntur í 29 ár en deilir ekki rúmi með eiginkonunni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Smjörva skipt út á Landspítalanum Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Glerbrotum rigndi inn í bílinn Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál