Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Launaþjófnaður eigi að vera refsivert efnahagsbrot

  • What: Discussion on wage theft as a criminal offense
  • Impact: Legal implications for employers in Iceland
Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.2.2026 | 12:06 Launaþjófnaður eigi að vera refsivert efnahagsbrot Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags, Lars Christian Fjelstad og Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ. Efling/BIG Setja bókamerki „Við erum að senda skýr skilaboð um að launaþjófnaður sé glæpur, en ekki bara brot á reglum,“ sagði Lars Christian Fjeldstad í erindi sínu á Eflingarþingi í dag. Að því er fram kemur í tilkynningu eru slík skilaboð kjarninn í norskri löggjöf þar sem launaþjófnaður er skilgreindur sem refsivert efnahagsbrot og getur varðað allt að sex ára fangelsi. Fjeldstad, sem er lögfræðingur norska alþýðusambandsins LO, fór ítarlega yfir reynslu Norðmanna af lagasetningunni. Hann rakti hvernig Noregur varð fyrsta Evrópulandið til að innleiða sérstök refsiákvæði gegn launaþjófnaði eftir að frumvarp þess efnis tók gildi í byrjun árs 2022. Launaþjófnaður varðar allt að sex ára fangelsi Fjeldstad útskýrði að samkvæmt lögunum geti atvinnurekendur sem vísvitandi halda eftir launum, orlofi eða öðrum greiðslum átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi, en allt að sex ár ef brotin eru stórfelld. „Lögin snúa meðal annars að því að koma í veg fyrir að þeir sem ástunda launaþjófnað nái með því samkeppnisforskoti en ekki síður, og um leið, að verja verkafólk sem er oft í viðkvæmri stöðu,“ er haft eftir Fjeldstad í tilkynningunni. Ákvæðið taki bæði til lögbundinna og samningsbundinna réttinda, þar á meðal yfirvinnu, orlofs og annarra greiðslna. Frá erindi Fjeldstad í dag. Efling/BIG Lögin beinast að vísvitandi brotum Fjeldstad lagði áherslu á að lögin beindust að vísvitandi brotum og ekki væri verið að refsa fyrir heiðarleg mistök. Raunverulegur misskilningur eða ágreiningur um túlkun reglna falli almennt utan refsirammans. Þá tók hann nokkur dæmi úr norskum dómstólum, þar á meðal um mál þar sem atvinnurekandi var dæmdur fyrir að hafa vangreitt starfsmanni laun upp á milljónir króna, auk svonefnds Fibertec-máls þar sem framkvæmdastjóri hlaut óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir stórfelldan launaþjófnað. Hann vakti einnig sérstaka athygli á nýlegum áfrýjunardómi frá janúar 2026, þar sem kerfisbundin vangreiðsla til 13 starfsmanna var talin einn samfelldur glæpur. Dómstóllinn hafi hafnað því að fjárhagserfiðleikar gætu réttlætt slíka háttsemi. Frétt af mbl.is „Við þurfum þessar vinnandi hendur“ Þrýstingur launagreiðenda á stjórnmálamenn líkist skipulagðri glæpastarfsemi Í umræðum eftir fyrirlesturinn sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, að þær upphæðir sem Fjeldstad hefði nefnt væru svipaðar þeim sem Efling sæi í sínum málum. Munurinn lægi aftur á móti í því að refsiheimildir á Íslandi væru mun veikari. Fjeldstad sagði að í Noregi hefði myndast breið samstaða um nauðsyn slíkrar löggjafar og að hún hefði ekki mætt verulegri pólitískri andstöðu. Sólveig Anna sagði það gjörólíkt stöðunni á Íslandi, þar sem harðri andstöðu hefði verið mætt við tilraunum til að setja sambærileg lög. Hún sagðist telja það illskiljanlegt í ljósi þess að hún væri fullviss um að stuðningur við slíka lagasetningu væri afar mikill meðal almennings. Þrýstingur launagreiðenda á stjórnmálamenn væri með þeim hætti að það líktist nánast skipulagðri glæpastarfsemi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þjóðvegurinn við Hellu lokaður vegna umferðarslyss Slysið á Suðurlandi: Erlendir ferðamenn í báðum bílunum Páll gefur ekki kost á sér í vor Mikill liðstyrkur til Akureyrar Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk tjaldar inni hjá sér“ Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Þjóðvegurinn við Hellu lokaður vegna umferðarslyss Slysið á Suðurlandi: Erlendir ferðamenn í báðum bílunum Páll gefur ekki kost á sér í vor Mikill liðstyrkur til Akureyrar Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vegagerðin skoðar breytingar eftir atvikið í gær Fyrsta þyrluskoðun sinnar tegundar Fært til lendingar í Keflavík á ný Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article