Innlent | mbl | 27.2.2026 | 13:05 | Uppfært 13:21 Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Fyrir utan Ölduselsskóla í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Mygla í húsnæði Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu Ekki varað við myglunni Loka í annað sinn vegna myglu á 10 árum Áralangar viðhaldsframkvæmdir Hafa áhyggjur af loftgæðum í enn einum leikskóla » Fleiri tengdar fréttir Starfsfólk Ölduselsskóla hafði allt frá því í ágúst gert athugasemdir við starfshætti verktakans sem sá um framkvæmdir og endurbætur á skólanum eftir að mygla kom þar í ljós síðasta vor. Svo virðist sem ekki hafi verið hlustað fyrr en sauð upp úr í vikunni og verktakanum var sagt upp í viðurvist starfsfólks. Starfsmaður skólans, sem ekki vill koma fram undir nafni, segir að menn á vegum verktakans hafi meðal annars valsað á milli kennslustofa þar sem nemendur sinntu námi, borað í gólf og loft og skilið eftir opin sár þar sem vitað var að hættuleg mygla hafði fundist. Stórum hluta skólans hafi verið lokað meðan á framkvæmdunum stendur, sem hafi þrengt verulega að öllu skólastarfi. Mörgum nemendahópum hafi verið troðið saman í kennslustofum og fjöldi starfsmanna hafi þurft að deila rýmum þar sem gert er ráð fyrir mun færri. Átta til tíu starfsmenn skólans eru nú í veikindaleyfi eða hafa þurft frá að hverfa úr starfi. Frétt af mbl.is Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Framkvæmdir. Skólahaldi í Ölduselsskóla var aflýst með skömmum fyrirvara í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Verktakanum sagt upp Í gær var greint frá því að skólahald í öllum árgöngum Ölduselsskóla í Seljahverfi í Reykjavík og frístundastarf 1. og 2. bekkjar yrði fellt niður í dag vegna ófyrirséðra breytinga sem snúa að framkvæmdum sem standa yfir í skólanum, eins og það var orðað í bréfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar. Hafði þá verktakanum verið sagt upp og hann tekið niður öryggisbúnað og girðingar án þess að gera nokkrar ráðstafanir. Því var ekki hægt að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks í skólanum. Mygla greindist í Ölduselsskóla síðastliðið vor og í ljós kom að allt svæði unglingadeildar og frístundar fyrir yngri börnin var mjög illa farið. Kennslu var engu að síður haldið áfram að sögn starfsmannsins og það var ekki fyrr en síðasta kennsludaginn í maí sem ákveðið var að loka því rými. Starfsfólk mun hafa verið frekar ósátt við að það væri ekki gert strax í ljósi þess hve illa húsnæðið var farið. Frétt af mbl.is Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu Verktakinn hafði tekið niður öryggisbúnað og girðingar án þess að gera nokkrar ráðstafanir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sótsvört skýrsla kynnt í október Starfsfólk óttaðist að fyrst þetta rými skólans væri í raun ónýtt væru fleiri rými í skólanum illa farin. Var því tjáð að sýni hefðu verið tekin í öðrum rýmum en í ágúst þegar skólahald hófst var ekki búið að greina frá niðurstöðum. Starfsfólk spurði reglulega um niðurstöðurnar en það var ekki fyrr en á fundi í lok október að niðurstöður lágu fyrir. „Þá kom Reykjavíkurborg og fundaði með starfsfólkinu og það var sótsvört skýrsla. Húsið allt meira og minna undirlagt af myglu, rakaskemmdum og einhverjum viðbjóði,“ segir starfsmaðurinn, sem vill ekki koma fram undir nafni, í samtali við mbl.is. Starfsfólkinu var engu að síður tjáð að skólinn yrði áfram opinn og að kennt yrði í húsnæðinu en gert yrði við eitt og eitt rými í einu. Starfsmaðurinn segir að á þeim tíma hafi fólk verið farið að detta út úr vinnu í veikindaleyfi, allt fólk með mikil einkenni vegna myglunnar. Fólki stóð til boða að fara í heilsufarsskoðun og nokkrir sendir í leyfi samstundis. „Það er mikil vinna þarna í gangi og við erum með skýrslu sem sýnir mjög hættulegar myglutegundir en við erum samt látin vera þarna. Húsgögn voru færð á milli rýma og kennslugögn. Vinnufólk notast ekki við viðeigandi hlífðarbúnað og öryggisstaðlar eru ekki virtir. Það er galið að fólk eigi að mæta í vinnuna sína og skólann sinn og umhverfið er hættulegt.“ Frétt af mbl.is Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla „Mér finnst galið að heilbrigðiseftirlitið hafi ekki gert neinar athugasemdir,“ segir starfsmaður við skólann. mbl.is/Eggert Jóhannesson Borað í stofum fullum af nemendum Menn á vegum verktakans hafi gengið á milli rýma án hlífðarbúnaðar og inn í kennslustofur þar sem börn voru að sinna sínu námi. „Það var verið að taka sýni á meðan það voru kannski 20 börn í stofunni. Það var borað í gólf og loft og allt opnað. Fyrsta sýnið var til að mynda tekið á kaffistofunni í miðjum matartíma þar sem húsnæðið var verst farið.“ Óánægja hafi magnast upp síðustu vikur og í gær hafi verið haldinn starfsmannafundur. Í ályktun frá fundinum er farið fram á að Reykjavíkurborg tryggi öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og nemendur og krefst þess að tafarlaust verði gert hættumat og skrifleg áætlun um hvernig tryggja eigi öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum. Daginn fyrir fundinn varð starfsfólk vitni að því að einhver frá borginni kom í skólann og sagði upp verktakanum á staðnum fyrir opnum tjöldum. Var verktakanum gert að taka pokann sinn, sem hann gerði strax. „Þeir fóru í að rífa niður girðingar sem þeir áttu og taka verkfæri. Þá varð allt brjálað. Það voru opnir skurðir og mygluð rými sem eiga að vera lokuð af. Börn og starfsfólk voru í skólanum þar sem var í raun stórhættulegt svæði.“ Frétt af mbl.is Loka í annað sinn vegna myglu á 10 árum Ekki hefur verið hægt að nýta nema hluta Ölduselsskóla vegna framkvæmda og hefur nemendum og kennurum verið þjappað saman í rýmið sem eftir er. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Af hverju gekk þetta svona langt?“ Starfsmaðurinn segir aðstæður hafa verið óboðlegar bæði starfsfólki og börnum frá því framkvæmdir hófust. 50 til 60 prósent af rýmum skólans séu lokuð og að fólki hafi verið þjappað saman í þeim rýmum sem eftir eru. Fjöldi starfsmanna þurfi að deila rýmum sem ætluð eru mun færra fólki og að margir nemendahópar séu saman í einni kennslustofu, svo dæmi séu tekin. Hvergi séu í raun viðunandi aðstæður vegna þrengsla. Einhver kennsla fer fram í Seljakirkju en það er aðeins lítill hópur sem hægt er að koma fyrir þar. „Mér finnst galið að heilbrigðiseftirlitið hafi ekki gert neinar athugasemdir. Til dæmis eru örfá klósett sem eru fyrir um 80 starfsmenn. Allar vinnuaðstæður eru óboðlegar. Það er allt brotið, allar reglugerðir. Hvað eru þessir eftirlitsaðilar að gera ef þeir eru ekki að vernda nemendur og starfsfólk?“ Enginn hafi brugðist við með réttum hætti og gripið starfsfólkið. „Af hverju gekk þetta svona langt? Þegar börn eiga í hlut finnst mér að þau eigi alltaf að njóta vafans. Ef það er einhver sem er ekki að gera hlutina rétt þá á að bregðast við strax. Börnin eru geymd í gluggalausum rýmum og allt of mörg á hverjum fermetra. Þetta jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum.“ Stundaskrár nemenda hafi riðlast verulega bæði vegna ástands skólans og vegna þess hve margir kennarar hafa dottið út. Hinir og þessir starfsmenn gangi í störf kennara og faglegt starf sé smám saman að fjara út að mati starfsmannsins. „Reiðin okkar beinist að Reykjavíkurborg og Kennarasambandinu. Það er enginn sem tekur það á sig að segja stopp, hingað og ekki lengra. Skólastarf snýst ekki um svona skítamix, við eigum að vera faglegri.“ Gæðakröfur hafi ekki verið uppfylltar Í morgun sendi borgin frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að gerðar hafi verið breytingar á hópi verktaka sem koma að framkvæmdum við Ölduselsskóla. Þar segir einnig að við eftirlit verkefnastjóra hafi komið í ljós að frágangur í verkinu hafi ekki uppfyllt þær gæðakröfur sem gerðar séu í slíkum framkvæmdum og ekki hafði verið brugðist nægilega vel við athugasemdum. Þá hafi hæfnisviðmið ekki verið uppfyllt í samræmi við samning og ákvörðun verið tekin í samráði við innkaupadeild og lögfræðinga umhverfis- og skipulagssviðs að ljúka samstarfi við verktakann í þessu verkefni og fá annan í hans stað. Öryggisgirðingar og innanhúslokanir hafi verið fjarlægðar með nokkrum hraði sem hafi valdið því að öryggi hafi ekki verið með þeim hætti sem það átti að vera. Þá er tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir að breytingarnar valdi verulegum töfum á verkinu. Frétt af mbl.is Ekki varað við myglunni Tengdar fréttir Mygla í húsnæði Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu Ekki varað við myglunni Loka í annað sinn vegna myglu á 10 árum Áralangar viðhaldsframkvæmdir Hafa áhyggjur af loftgæðum í enn einum leikskóla » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 25 milljónir króna styrkur frá ríkinu Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af? Leggja til afnám kolefnisgjalda Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Páll Winkel skipaður ráðuneytisstjóri Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Hvetja starfsfólk til að yfirgefa Ísrael í dag „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Síðustu vélarnar í loftið í nótt Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmi