Innlent | mbl | 17.4.2026 | 11:56 Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Víða er ekkert nema drulla þar sem áður var gras. Ljósmynd/Aðsend Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Skólalóð Öldutúnsskóla, fjölmennasta grunnskóla Hafnarfjarðar, hefur verið í niðurníðslu um nokkurt skeið en ljósmyndir af henni sýna rifin fótboltamörk, stóra polla sem hafa myndast við byggingar og tún sem eru orðin að hálfgerðu drullusvaði. Í aðsendri grein í Fjarðarfréttum í gær vakti formaður foreldrafélags skólans athygli á málinu og sagði að í „skammarlega mörg ár hafa foreldrar, nemendur og starfsmenn Öldutúnsskóla verið að kalla eftir heildstæðri áætlun um uppbyggingu og viðhald á skólanum.“ Í samtali við mbl.is segir Margrét Sverrisdóttir skólastjóri Öldutúnsskóla að stjórnendur skólans hafi vakið máls á ástandi lóðarinnar við bæjaryfirvöld enda sé ekki vanþörf á heildarumbótum á lóðinni. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir málið sömuleiðis hafa verið til skoðunar og að til standi að fara í framkvæmdir á lóðinni í ár. Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnafjarðar mbl.is/Árni Sæberg Algjörlega óboðlegt að sögn bæjarstjórans Spurður af hverju það hafi ekki verið ráðist í framkvæmdir fyrr í ljósi þess að lóðin hefur verið í niðurníðslu um nokkurt skeið segir Valdimar að viðhaldi hafi verið dreift yfir bæinn hér og þar síðustu ár. „Hins vegar hefur þessi lóð verið með þannig undirlag og fleira að hún er farin að láta verulega á sjá. Í haust var tekin ákvörðun um að fara í skoðun á leik- og grunnskólalóðum í bænum og niðurstaða þessarar vinnu – það þurfti kannski ekkert hóp til að segja það – er sú að skólalóð Öldutúnsskóla er komin í algjöran forgang og hún er á áætlun á þessu ári í svona svokallað stærra viðhald,“ segir hann. Er lóðin í boðlegu ástandi fyrir nemendur eins og hún er í dag? „Eins og hún er í dag þá er þetta algjörlega óboðlegt, það er bara hreinlega þannig. Hún hefur verið slæm í töluverðan tíma og þess vegna var sú ákvörðun tekin hérna í bænum að fara í skoðun á öllum lóðum og fara í myndarlegar aðgerðir þar sem þeirra er þörf og Öldutúnsskólalóðin er þar efst á blaði.“ Að lokum segir Valdimar að hann geri ráð fyrir að framkvæmdir muni hefjast á lóðinni með vorinu, þegar aðstæður leyfa. Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Davíð Smári fær lærisvein Óskars Hrafns Guðmundur Ingi færir sig um set Á meira en hrós skilið Þetta er pítsa sem enginn má missa af Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sigmundur Davíð lét ekki segjast Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Óábyrgt að fara að lofa einhverju Bændur með harða gagnrýni Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Lögreglan oft kölluð að kaffistofu „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Vildi ekki hitta þingmennina Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Agabrot flugstjórans ólíðandi Kennarasambandið braut jafnréttislög Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Davíð Smári fær lærisvein Óskars Hrafns Guðmundur Ingi færir sig um set Á meira en hrós skilið Þetta er pítsa sem enginn má missa af Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Sigmundur Davíð lét ekki segjast Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Óábyrgt að fara að lofa einhverju Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Lögreglan oft kölluð að kaffistofu „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Vildi ekki hitta þingmennina Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Agabrot flugstjórans ólíðandi Kennarasambandið braut jafnréttislög Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá