Innlent | mbl | 24.4.2026 | 13:04 Vill „enga auðmýkt“ í skólamálum Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Skólamálin eru fyrirferðarmikil í sveitarstjórnum landsins og á Ísafirði gangast frambjóðendur við því að leggja þurfi áherslu á þau, m.a. í ljósi lakrar niðurstöðu í lesskilningskönnun. Hins vegar er ekki jafnljóst með hvaða hætti. Miðflokkurinn talar fyrir því að útlend börn fari í sérstaka móttökudeild til þess að kenna þeim íslensku. Þetta er meðal þess, sem fram kom á vel heppnuðum borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði á miðvikudag, þar sem oddvitaframbjóðendur framboðanna fimm stóðu fyrir máli sínu, svöruðu spurningum blaðamannanna Stefáns Einars Stefánssonar og Andrésar Magnússonar, en tóku jafnframt við spurningum úr sal. Frétt af mbl.is Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Meiri stuðning við kennara Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs, segir ýmsar leiðir færar og þar á meðal hafi símabann í skólum verið rætt, leitað sé leiða til þess að fá leiðbeinendur í leikskóla meðan á menntun þeirra stendur og fleira, en efnt verður til menntaþings á Vestfjörðum í júní, þar sem það verður til umræðu. Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknarflokksins, segir að verkefnið blasi við af fyrrgreindum niðurstöðum, og að bærinn verði að styðja betur við kennara og hlusta á þá um umbætur í skólastarfi. Hann minnti á að kennarar einir gætu ekki bætt úr, þar þyrftu foreldrar einnig að leggja sitt af mörkum. Jónas Þór Birgisson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði það ekki hlutverk bæjarfulltrúa að messa yfir kennurum og segja þeim fyrir verkum. Hann sagði að málefnið þyrfti að nálgast af auðmýkt, komast að því hvar skórinn kreppti og athuga hvað hefði reynst vel til úrbóta, þar mætti læra af reynslu annarra. Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, oddvitaframbjóðandi Samfylkingar, tók undir orð Jónasar um auðmýkt. Hins vegar þyrfti að bregðast hratt við og setja skólamálin í forgang. „Þetta er ekki flókið“ Við annan tón kvað hjá Sævari Óla Hjörvarssyni, oddvitaframbjóðandi Miðflokksins: „Enga auðmýkt!“ Hann sagði að það þyrfti að hjálpa kennurum til þess að ná upp aga í skólum svo krakkarnir lærðu, en þar þyrfti að hafa foreldra með í ráðum. Hann mælir sömuleiðis fyrir móttökudeildum fyrir útlend börn, þar sem þeim yrði kennd íslenska áður en þau yrðu tekin inn í almennan bekk. „Þá kemur þetta allt. Þetta er ekki flókið.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tárin féllu þegar lík Maradona var sýnt Loksins „engir Rússar í herberginu“ Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus Vill „enga auðmýkt“ í skólamálum Embla Wigum á rauða dreglinum í Lundúnum Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Milljónir munu missa vinnuna Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Minntist ekki á varanlegar undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Tárin féllu þegar lík Maradona var sýnt Loksins „engir Rússar í herberginu“ Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus Vill „enga auðmýkt“ í skólamálum Embla Wigum á rauða dreglinum í Lundúnum Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minntist ekki á varanlegar undanþágur Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Ríkari réttur til kosningaþátttöku Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar