Sunna Margrét gaf út fyrstu stuttskífu sína árið 2020 og fjórum árum síðar gaf hún út plötu í fullri lengd. Sunna er búsett í Sviss og hefur verið þar í rúm tíu ár. Upphaflega lék hún tónlistina sína einsömul en fann svo hljómsveit til þess að spila með úti í Sviss. Fern by Sunna Margrét Þegar leið á kom hún meira heim til Íslands til þess að spila og verkefnin hennar voru meira unnin hér á landi. Henni fannst hún finna sig meira í tónlistarsenunni hér á landi. „Maður verður svo aktívur með vinum sínum,“ segir Sunna. Hún ákvað að heyra í vinkonu sinni Sigurlaugu Thorarenssen, eða Sillu, fyrst til þess að stofna hljómsveit á Íslandi og svo bættist við trommuleikarinn Sólrún Mjöll Kjartansdóttir. Hljómsveitin lauk nýverið tónleikaferðalagi í Bretlandi þar sem þær spiluðu á þrennum tónleikum. Áður en þær fóru út héldu þær einnig eins konar upphitunartónleika hér heima í Smekkleysu á sjálfan valentínusardaginn. Tónleikaferðalagið kom til þegar umboðsamaður Sunnu í London stakk upp á því að halda tónleika þar. Sunna vildi þó ekki gera það án þess að hafa bandið með sér. „Ef maður er að fara á annað borð til London þá er eins gott að gera það eins vel og maður getur,“ segir hún. Hún talaði því við Sillu sem heyrði í Bethany Ley og Lily Montague sem slógust einnig með í för fyrir túrinn. Þá reyndi bandið að bóka fleiri tónleika en þá sem voru nú þegar skipulagðir í London. Það voru þá Silla og Lily sem létu tónleikana í Bristol ganga upp en Sunna þekkti svo hljómsveit í Nottingham sem var til í að setja upp tónleika fyrir þær þar. Þar sem Sunna býr í Sviss þurfti hún að koma fyrst til Íslands til þess að ná að æfa með hljómsveitinni áður en haldið var í ferðalagið. Þá kom upp hugmyndin að heyra í Smekkleysu en það var fyrir tilviljun að tónleikarnir lentu á Valentínusardaginn. Lúpína og Knackered bættust þá einnig við og spiluðu þetta sama kvöld. „Þetta er alltaf bara svona vinir að hjálpast að.“ „Það er alveg bras að vera að fara frá Sviss til Íslands“ Sunna viðurkennir að það geti verið strembið og kostnaðarsamt að þurfa að fara með flugi til Íslands til þess að æfa en hún er þó þakklát fyrir að það sé hægt að sækja um ferðastyrki. Hún leggur til að fólk sem vill fara í tónleikaferðalag geri allt með góðum fyrirvara og geri ráð fyrir því að allt verði dýrara en það virðist í fyrstu. Eins og er vinnur Sunna að nýrri plötu og segist vera búin að semja og taka upp flest. Hún fékk einnig hljómsveitina sína með sér í lið við gerð plötunnar. Sunna byrjaði fyrst að vinna að henni þegar hún var í listamannabúsetu í Frakklandi. Hún hafði verið mikið að vinna með forritið Ableton áður en byrjaði þar að taka upp hljóðfæraleik og byggja lögin í kring um hann frekar. Þar af leiðandi vantaði hana trommuleikara og fékk þá Sólrúnu til þess að spila inn á lögin. Sunna snýr aftur til Íslands í apríl og ætlar þá að klára að fínpússa hluti með Sillu varðandi plötuna. „Þetta er margt sem ég hef aldrei prófað áður, sem er búið að vera mjög spennandi að vinna með,“ segir hún. Fern - Live for The Line of Best Fit by Sunna Margrét Nú er Sunna að vinna í því að koma tónlistinni sinni af streymisveitunni Spotify en veltir því fyrir sér hvað það þýðir varðandi það að koma tónlistinni á framfæri til hlustenda. Hún spyr sig hvort tengingin við hlustendur geti verið í gegn um aðrar veitur eða jafnvel á samfélagsmiðlum eða tónleikum. „Það er eitthvað sem ég er búin að vera að pæla í undanfarið fyrir nýju plötuna,“ segir hún. Fjallað var um Sunnu Margréti í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Tónlistarkonan Sunna Margrét lauk nýverið tónleikaferðalagi í Bretlandi. Ólátagarður á Rás 2 ræddi við hana um tónleikana og væntanlega plötu hennar.