Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sara er bjartasta vonin í íslenskri tónlist: „Þvílíkur heiður, ég er bara rosalega þakklát,“

Read Full Article →

„Þvílíkur heiður, ég er bara rosalega þakklát,“ segir bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaunum. Sara Mjöll Magnúsdóttir hafði ekki minnsta grun um að hún fengi þessa viðurkenningu þegar forseti Íslands las nafnið hennar upp. „Það er svo mikil sál í þessu hljóðfæri,“ segir hún um hammondorgelið sem hún hefur sérhæft sig í að spila á undanfarið ár. Þetta er ekkert mjög algengt hljóðfæri og síður en svo meðfærilegt. Framleiðslu þess var hætt fyrir mörgum áratugum. Sara býr í New York þar sem hún lagði stund á framhaldsnám í tónlist. Fyrsta platan hennar, A Place To Bloom, kom út í fyrra og hún er með mörg járn í eldinum. Rætt var við Söru Mjöll Magnúsdóttur í Kastljósi í gærkvöld. Hægt er að horfa á viðtalið við hana í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article