Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Enginn getur haft vond áhrif á mig ef ég ber fulla ábyrgð á mér“

Read Full Article →

Ragnhildur Gísladóttir hefur glatt Íslendinga með söng, tónlist og frumlegheitum um áratuga skeið. Hún á sér margar hliðar sem listamaður en er alltaf í tengingu við sjálfa sig og veit hvað hún vill. Hún hefur stíl sem hefur einkennt hana í áratugi. Ragnhildur er fyrirmynd kvenna í músík enda tók hún mikla áhættu þegar hún hætti í Brimkló, einni vinsælustu hljómsveit landsins, árið 1981 til að stofna Grýlurnar sem voru fyrsta íslenska kvennahljómsveitin. Hún er jafnréttissinni en sjónarhorn hennar á það er ef til vill ólíkt margra annarra. Ólafur Páll Gunnarsson ræddi við Ragnhildi í Rokklandi á Rás 2. Óöryggi sem brýst út í stami Ragnhildur segist alltaf kvíða því aðeins að koma fram hvort hvort heldur er að fara í viðtöl eða upptökur. Yfirleitt þyki henni þó gaman þegar hún er byrjuð. Hún stamaði sem barn og þegar hún verður stressuð á stamið það til að koma upp aftur. „Það verður stundum dálítið ýkt hjá mér og þá fer ég bara í eitthvað svartnætti og mér finnst það mjög óþægilegt. Ég stífna upp.“ Hún reynir að undirbúa sig fyrir viðtöl svo það gerist ekki. Eitt sinn kallaði hún sjálfa sig tafsara en er hætt því í dag. Fram að tólf ára aldri stamaði hún svolítið en afi hennar hjálpaði henni eitt sumarið þegar hún var hjá honum í sveitinni. Þá bað hann hana að segja sér frá hinu og þessu og hlustaði þolinmóður. „Við vorum góðir vinir. Ég alveg dýrkaði afa minn.“ Hún finnur enn fyrir staminu ofan í maganum og þarf að segja við sjálfa sig að það sé allt í lagi að taka sinn tíma, slaka á og anda djúpt. „Þetta er, held ég, rosalega mikið hluti af óöryggi.“ Ástæðuna fyrir staminu rekur hún meðal annars til þess að fólk af kynslóð foreldra hennar hafi ekki útskýrt hlutina mjög vel þegar hún var barn. „Ég ólst upp á mjög sérkennilegu heimili, þarna í Arnarholtinu. Þetta var frábær staður en það var ýmislegt sem gerðist þar á heimilinu sem var ekkert endilega verið að útskýra fyrir manni.“ Einhver hafi til að mynda týnst einhvern tímann og hún aldrei fengið að vita hvort hann hefði fundist. „Þetta var fólk sem var lasið þarna á heimilinu. Ef það er ekki útskýrt fyrir manni og utanumhald í einhverju sem er óþægilegt, þá sest það inn hjá manni og maður verður óöruggur.“ „Þetta var kannski ekki til að efla sjálfsálitið“ Ragnhildur veit ekki hvort það var eitthvert áfall sem framkallaði stamið en telur það líklegt. Henni eru afmælisdagarnir hennar minnisstæðir vegna þess að hún var sú eina sem mundi eftir þeim. Fullorðna fólkið gleymdi oft að hún ætti afmæli og hún veltir fyrir sér hvort það hafi haft áhrif. Hún man sérstaklega vel eftir sex ára afmælinu sínu. Þá dreif hún sig á fætur, klæddi sig í sparipilsið og hljóp yfir á vistheimilið þar sem faðir hennar var. Þá var verið að undirbúa mikla veislu og Ragnhildur gladdist mjög. Fólkið spurði hvers vegna hún væri svona fín og hún sagðist eiga afmæli og spurði fyrir hvern þessi veisla væri. Fólkið hló og sagði að hún væri fyrir hana. Hún fór aftur heim og sagði fólkinu þar frá því að búið væri að flagga og gera mikla veislu fyrir afmælisdaginn. „Þau verða rosalega vandræðaleg og útskýra þetta ekki beint fyrir mér, fannst þetta bara svolítið fyndið. Svo sé ég bara að það er að koma bílalest frá Reykjavík með borgarstjóranum. Það var ekkert út af sex ára afmælinu mínu.“ „Þetta var alveg svakalega vont að fá þetta. Fólk áttar sig ekki á því að útskýra. Þau gerðu þetta bara óvart en þetta var kannski ekki alveg til að efla sjálfsálitið.“ Enginn annar sem ber ábyrgð á manni sjálfum Tenging við sjálfið er Ragnhildi mikilvæg, hvort sem það er við barnið eða sig sem fullorðna og plötuna Baby vildi hún gera beint frá hjartanu og í samtali við innra barnið. Fyrir nokkru fór hún til heilara þá hitti hún fyrir fullorðna Ragnhildi og hugsaði með sér: „Rosalega er ég oft búin að skamma þig og segja að þú hafir ekki staðið þig vel í þessu og að þetta sé ekki nógu gott.“ Hún segir fólk tala sjálft sig mikið niður en þarna hafi hún gert samning við sjálfa sig um að standa sig gagnvart sér. „Ég fór inn á svæði sem er bak við hjartað, sem er mitt heilaga sjálf. Ég sé um þetta svæði algjörlega sjálf, það er enginn sem getur stjórnað því eða haft vond áhrif á mig ef ég bara ber fulla ábyrgð á mér. Ég verð að taka því.“ „Ég ber ábyrgð á mér. Það er enginn annar sem gerir það en ég.“ Finnst sterkara þegar kynin vinna saman Ragnhildi finnst ekki nauðsynlegt að fá fleiri konur í tónlistarbransann. „Við erum með alveg frábærar konur í tónlist á Íslandi sem eru algjör power-búnt, geggjaðar, fallegar og yndislegar. Auðvitað er gaman þegar bætist við hópinn en það er svo merkilegt að þeim eru allar leiðir opnar.“ „Karlmenn í bransanum vilja konur í bransann. Þannig er það. Það er bara frábært hvernig þetta er í dag og ég hef engar áhyggjur af þessu.“ Eitt sinn var Ragnhildur beðin að koma fram með kvennahljómsveit á kvennafrídaginn en hún vildi það ekki. „Mér finnst svo flott þegar fólk vinnur saman, öll kyn. Það skiptir ekki máli hvort það er karl, kona eða kvár.“ Henni þykir gaman að blanda kynjum og telur jafnræðið komast lengra þegar allir vinna saman. „Verum jöfn í þessu og berum virðingu fyrir mannkyninu. Mér finnst það sterkara.“ Þegar þetta var hafi hugarfarið enn þá verið mikið á þá leið að „vera þolandi í því að fá ekki að gera það sem þú vilt og vera það sem þú vilt. Þetta er sterkur dagur þegar þær mæta allar niður í bæ en ég hefði viljað að það mættu öll kyn fara saman og fagna jafnrétti kynjanna.“ Þakklát en langar ekki alltaf að taka þátt í verðlaunakerfinu Ragnhildur verið margverðlaunuð og heiðruð. Hún var til að mynda valin borgarlistarmaður Reykjavíkur í fyrra og hlaut heiðursmerki STEFs á degi íslenskrar tónlistar. Árið 2012 hlaut hún fálkaorðuna en fyrstu verðlaunin sem henni hlotnuðust voru bjartsýnisverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur árið 2005. „Þetta er svo gott í hjartað, maður verður svolítið feiminn. Maður er þakklátur af því að það eru svo margir sem maður hugsar um að ættu að fá þetta líka. Ég er mjög þakklát og ég elska þetta fólk sem hefur dottið ég í hug.“ Hún er þó ekki alltaf í þeim gír að langa til að sækja um að vera tilnefnd til hinna ýmsu verðlauna og borga sig inn á tónlistarhátíðir til að fá tilnefningu. „Þetta er náttúrlega til að auglýsa tónlistina. Ég veit að þetta er vettvangur til þess og bara fyrir fólk að hittast. Í kvikmyndinni Með allt á hreinu veltir Egill Ólafsson fyrir sér tilgangi lífsins. Ragnhildur segist vera búin að komast að niðurstöðu. „Tilgangurinn er að sjá hvað er rétt og hvað er rangt og upplifa. Þetta er ákveðið þroskastig sem maður fer í gegnum. Þetta er örstutt, sál mín lifir og hefur lifað mjög lengi, ég er algjörlega sannfærð.“ Lífið á jörðinni geti verið mjög erfitt og það sé mjög erfið staða núna þar sem margar þjóðir eru ósáttar. „Það er þessi gígantíska hræðsla, að skjóta og drepa, meiða og skemma. Það er engin hugsun þarna um velferð eða að hugsa fallega um sjálfan sig. Líf skiptir svo litlu máli, allt andlegt líf skiptir þetta fólk engu máli. Það er svo agalegt, þetta eru svo miklar mannfórnir á þessu þroskastigi.“ Hún telur þó að allt muni fara vel. Mikilvægt að velja gleði Ragnhildur segist alveg gráta þegar henni líður illa. „Ef ég verð fyrir einhverju óréttlæti og ef ég meiði mig. Maður verður sorgmæddur yfir missi á einhverju, manneskju sem maður elskar og þykir vænt um. Það er erfitt.“ Þetta er þó það sem maður lærir í skólanum á jörðinni. „Þetta er svo svakalegur skóli sem við erum að fara í gegnum og námið er bara hellað. Þetta er svolítið mini hell . En það er bara mjög mikilvægt að maður, í sínu ófullkomna standi, verður að vera jákvæður og hafa gaman. Biðja og velja frið og velja gleði.“ Ragnhildur Gísladóttir samdi við sjálfa sig um að standa sig gagnvart sér. Þegar hún var yngri voru óþægilegir hlutir sjaldan útskýrðir sem gerði hana óörugga og er mögulega ástæða þess að hún stamaði sem barn og gerir jafnvel enn. Rætt var við Ragnhildi Gísladóttur í Rokklandi á Rás 2 þar sem farið var yfir ýmsa tónlist sem hún hefur gefið út og hvernig hún komst inn í tónlistarbransann. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article