Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ósáttur við árangurinn og boðar aðgerðir

Read Full Article →

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra boðar aðgerðir gegn þrálátri verðbólgu á næstu dögum. Fram til þessa hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar sagt að ekki stæði til að boða sértækar aðgerðir gegn verðbólgu en eftir að verðbólga reyndist langt yfir væntingum þriðja mánuðinn í röð hefur tónninn breyst. Verðbólga fór niður í 3,7 prósent í nóvember en yfir fimm prósent í janúar. Verðbólga stendur í stað milli mánaða og mældist 5,2 prósent í febrúar. „Það sem er erfitt að horfast í augu við er að það er verðbólguþrýstingur á mjög breiðum grunni og það kallar á viðbrögð. Við erum að vinna þessar tillögur, við þurfum líka að ræða þær við aðila vinnumarkaðarins en viðbrögð verða að koma.” Spurður að því hvort planið sé ekki að virka svarar hann: „Þessi árangur er ekki sá sem ég hefði viljað sjá. Viðbrögðin okkar voru að grípa fastar í taumana með meira aðhaldi í fjármálum ríkisins og stuðla að hallaleysi ríkisfjármálanna sem er eiginlega það sem við getum gert til þess að styðja þessa vegferð. Það dugar ekki að duga og þá þurfum við að skoða fleiri lausnir.”

Share this article