Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Þróunin hefur verið í rétta átt, það er stað­reynd“

Read Full Article →

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að bakslag hafi orðið í baráttunni við að ná niður verðbólgu í landinu. Hún segir hins vegar að árangur vinnist ekki alltaf í einu skrefi og þróunin hafi verið í rétta átt. „Það er staðreynd.“ „Við tökum ábyrgð á þeirri stöðu og herðum okkur enn frekar. Það er ekki í boði að missa sjónar á verkefninu,“ segir Kristrún í færslu á Facebook. „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. En við getum gert þetta. Með því að taka ábyrgð á stöðunni í sameiningu. Við munum vinda ofan af þessu bakslagi og leggja grunn að betra jafnvægi til lengri tíma í íslensku efnahagslífi.“ Viðurkennir að hafa fagnað of snemma Hún segir að ríkisstjórnin hafi verið vongóð þegar verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hafði þá ekki verið lægri frá árinu 2020. „Við freistuðumst til að fagna of snemma á þeim tímapunkti.“ Sjá einnig Verðbólgan hærri en þegar ríkis­stjórnin tók við Verðbólga hefur síðan aukist verulega og mældist 5,2% í janúar og febrúar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Kristrún segir vaxtahækkunina vera vonbrigði en segir stjórnvöld hvergi af baki dottin. „Við verðum að slá niður verðbólguvæntingar. Það besta sem ríkisstjórn getur gert til þess er að reka ríkissjóð réttum megin við núllið. Það ætlum við að gera. Og hvikum hvergi frá því plani.“ Forsætisráðherra segir verðhækkanir vera á breiðum grunni. Nú þurfi allir armar hagstjórnarinnar nú að standa við sitt og vinna að sama marki. „Kjarasamningar eru í gildi sem setja launaþróun skorður. Ríkisstjórnin mun gera sitt í fjármálaáætlun og með fyrstu hallalausu fjárlögunum í að verða áratug. Við höldum áfram að taka stórar ákvarðanir til að laga afkomuna.“ Hún segir fyrirtækin einnig bera ábyrgð og verði að standa við sínar skuldbindingar, með því að halda aftur af álagningu. Sjá einnig Ekki rætt við Seðlabankann um aðgerðir Hún segir að samhliða vinnslu fjármálaáætlunar sé ríkisstjórnin við að klára Airbnb-málið í þinginu og önnur úrræði til að draga úr þenslu á húsnæðismarkaði.

Share this article