Leikfélag Reykjavíkur, sem rekur Borgarleikhúsið, hagnaðist um 83 milljónir króna á rekstrarárinu sem lauk 31. júlí í fyrra. Rekstrarárið áður nam hagnaður 168 milljónum. Rekstrartekjur námu 2 milljörðum og drógust saman um 105 milljónir á milli rekstrarára. Tekjur af miðasölu voru 38% af veltu, rekstrarframlög 46% og aðrar tekjur 16%. Launagreiðslur voru stærsti gjaldaliðurinn eða 71% af veltu. Lykiltölur / Leikfélag Reykjavíkur 2025 2024 Tekjur 2.040 2.155 Eigið fé 571 488 Eignir 1.129 975 Afkoma 83 168 – í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .