Innlent | Morgunblaðið | 1.3.2026 | 10:17 Þrýstingur á verðbólgu gæti aukist Gagnrýni Seðlabankinn telur fyrirhugaða lagabreytingu um almannatryggingar geta aukið verðbólguþrýsting og dregið úr atvinnuþátttöku. Morgunblaðið/Árni Sæberg Setja bókamerki Fyrirhuguð breyting á lögum um almannatryggingar, um að greiðslur almannatrygginga taki mið af þróun launavísitölu Hagstofu Íslands í stað launaþróunar, getur aukið á verðbólguþrýsting á sama tíma og Seðlabankinn viðheldur þéttu taumhaldi peningastefnunnar til þess að koma verðbólgu í markmið. Þetta kemur fram í minnisblaði, sem Seðlabankinn hefur sent velferðarnefnd Alþingis, þar sem stjórnarfrumvarp um lagabreytinguna er til meðferðar. Segir í minnisblaðinu að áhrifin geti bæði verið bein, þar sem auknar ráðstöfunartekjur bótaþega auki einkaneyslu og þar með eftirspurn sem þrýsti upp verðlagi, og óbein ef hækkunin leiði til ósættis á vinnumarkaði um bilið á milli bóta og launa þannig að launakröfur og kröfur um hækkun bóta aukist á víxl. Seðlabankinn segir ljóst að launavísitala hækki alla jafna meira en kjarasamningsbundnar hækkanir, m.a. vegna launaskriðs. Gróf áætlun Seðlabankans bendi til þess að sögulega hafi launaskrið alla jafna bætt um 2,5 prósentum við árshækkun launavísitölunnar. Samkvæmt greinargerð lagafrumvarpsins hafi launavísitala hækkað að jafnaði um 1,7% meira á ári en greiðslur almannatrygginga á árunum 2014-2024. Miðað við áætlun um 230 milljarða króna greiðslur í ár og afleidd áhrif gæti þetta þýtt árlega aukningu ríkisútgjalda um á bilinu 4-5 milljarða króna. Sé tekið tillit til ýmissa þátta sem launavísitalan fangi ekki hafi laun hækkað minna en samkvæmt launavísitölunni. Þannig hafi árshækkun vísitölu heildarlauna að jafnaði reynst um 0,7 prósentum minni en árshækkun launavísitölunnar frá árinu 2009. Tenging við launavísitölu muni þannig hækka greiðslur almannatrygginga umfram raunverulega útborguð laun. Hækkun umfram kjarabætur Þá séu dæmi um að í kjarasamningum séu gerðar breytingar á uppbyggingu launa ákveðinna starfsstétta þar sem hluta af óreglulegum greiðslum er umbreytt í reglulegar greiðslur án þess að veruleg breyting verði á heildarlaunagreiðslum. Segir Seðlabankinn að verði frumvarpið óbreytt að lögum muni slíkar breytingar leiða til hækkunar á greiðslum almannatrygginga þrátt fyrir að launafólk hafi ekki notið raunverulegra kjarabóta. „Frá og með árinu 2019 hafa ýmsir kjarasamningar kveðið á um styttingu vinnuvikunnar, bæði á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera. Sú stytting mælist sem hækkun launavísitölu án þess að um hefðbundnar launahækkanir sé að ræða. Erfitt er að sjá rök fyrir því að greiðslur almannatrygginga eigi að taka mið af þeirri þróun. Þótt reiknað tímakaup launafólks hækki við styttingu vinnuviku eru launagreiðslur þeirra óbreyttar og þar með neyslugeta þeirra. Hins vegar myndu tekjur og neyslugeta bótaþega aukast samhliða hækkun launavísitölunnar. Tenging greiðslna almannatrygginga við þróun launavísitölu gæti því leitt til þess að kaupmáttur þeirra sem fá greiðslurnar eykst án þess að kaupmáttur launafólks hafi aukist. Þar sem engin ný verðmætasköpun liggur að baki auknum kaupmætti bóta verður hann óhjákvæmilega á kostnað launafólks þar sem hann er fjármagnaður af hinu opinbera þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs,“ segir m.a. í minnisblaðinu. Dregur úr hvata Þá segir Seðlabankinn að hækki bætur umfram launaþróun dragi það óhjákvæmilega úr hvata til atvinnuþátttöku, einkum hjá einstaklingum með skerta starfsgetu. Það gæti leitt til þess að færni þessa viðkvæma hóps skerðist og að hann festist utan vinnumarkaðar. Það vinni gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um að auka þátttöku þessara hópa á vinnumarkaði. Einnig megi gera athugasemd við það hversu almenn þessi breyting sé og því vakni spurningar um hvort hægt væri að ná sama eða betri árangri með annarri og skilvirkari útfærslu sem beinist sérstaklega að þeim sem lakast standa. [email protected] Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Þrýstingur á verðbólgu gæti aukist Óvenjustór drengur sló met á sjúkrahúsi Ævintýrið um Norskubusku Vara við stórhríð á morgun Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 21 milljarðs gjaldþrot Play Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skipti um kyn í miðju matarboði Mest lesið Í gær Í vikunni Skipti um kyn í miðju matarboði Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum Aukið aðhald óháð Kerecis Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki „Það er engin heppni í skák" Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Þrýstingur á verðbólgu gæti aukist Óvenjustór drengur sló met á sjúkrahúsi Ævintýrið um Norskubusku Vara við stórhríð á morgun Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Merki um að Khamenei sé látinn 21 milljarðs gjaldþrot Play Mest lesið Í gær Í vikunni Skipti um kyn í miðju matarboði Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum Aukið aðhald óháð Kerecis Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki „Það er engin heppni í skák" Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“