Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Halldór Laxness og nautnalyfið bjór

  • What: Historical article about Halldór Laxness and beer in Iceland
  • Impact: No security impact
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.3.2026 | 11:18 Halldór Laxness og nautnalyfið bjór Heimsborgari Halldór Laxness í vinnustofu sinni að Gljúfrasteini 1980. mbl.is/Einar Falur Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um bjórmenningu á Íslandi á þeim 37 árum sem á morgun verða liðin frá því að bjórinn var leyfður á ný á Íslandi. Fyrir þann tíma voru skiptar skoðanir um hvort leyfa ætti bjór og margir hvöttu til þess að það yrði gert. Einn þeirra var Nóbelsskáldið Halldór Laxness sem birti hugleiðingu sína um ágæti bjórs í Morgunblaðinu á því herrans ári 1977. Frú Auður Laxness kom með greinina á skrifstofur Morgunblaðsins í Aðalstræti og greinin birtist í Velvakanda fimmtudaginn 2. júní 1977. „Velvakanda hefur hlotnast sá heiður að fá sent bréf frá Nóbelsskáldi okkar, Halldóri Laxness, og fjallar hann hér um deilumál sem hefur verið nokkuð ofarlega á baugi í vetur,“ sagði í kynningu á greininni sem bar fyrirsögnina: Heilsan, dýrmætasta eign okkar . „Undir ofanritaðri fyrirsögn rakst ég á ritgerð í heilbrigðisdálki blaðsins Süddeutsche Zeitung í München á dögunum 26. apríl. Þetta stórblað hefur orð fyrir að vera eitt vandaðast blaða í Þýskalandi og ritað með miklum menningarbrag. Sá hluti greinarinnar sem ég snara hér fjallar um bjór í heilsubótarskyni. Fróðlegt er að heyra hverju hlutgengir menn í heilbrigðismálum Þýskalands, þessa mikla bjórneyslulands, halda fram um þennan drykk, og bera saman við ýmislegt sem skrifað er um málið hér á landi, ekki síst með tilliti til þess að hér veit almenningur ekki gjörla um hvað verið er að tala þegar bjór er á dagskrá, þar sem drykkurinn hefur verið kríminalíséraður hjá okkur í tvær kynslóðir, það er að segja, látinn jafnbrýna glæp allar götur síðan árið 1915. Sú umsögn sem ég þýði hér stendur á ábyrgð heilbrigðismálaritstjóra ofangreinds blaðs, dr. Nicolaus Oemike,“ skrifaði Halldór. Í upphafi vísar Halldór til umræðu um ýmsa heilsukvilla og neyslu svefnlyfja. „Bjór hefur sérstöku hlutverki að gegna hjá taugaveikluðu fólki sem þjáist af hugaræsingu og af of miklu vinnuálagi samfara tilhneigingu til svefnleysis. Í þessu tilfelli kemur sterkur bjór einfaldlega til greina sem lyf,“ skrifar skáldið og segir að draga megi úr lyfjagjöf niður í örsmáa skammta ef bjór er drukkinn meðfram lyfinu. Dökkur bjór lystugri en ljós Þá segir Halldór að ófáir „bjórfræðingar“ hafi margt hugsað, rætt og ritað um „hið eldforna þrautreynda „nautnalyf“ bjór.“ Prófessor Wilhelm Stepp hafi sagt að bjór sé, auk eiginleika síns sem nautnar, þýðingarmikill þáttur í daglegu mataræði þýsku þjóðarinnar, drukkinn af almenningi nálega með hverri máltíð. „Sú staðreynd að bjór inniheldur ýmis helstu næringarefni gerir hann svo mikilsverðan á matborði,“ segir hann og bætir við að næringarefnafræðingur hafi sýnt fram á að einn lítri af bjór innihéldi eins mikla eggjahvítu og 120 ml af mjólk eða 60 g af brauði eða 25 g af kjöti. Auk þess væri hann kolvetnaríkur og innihéldi allverulegt magn af amínósýrum og bætiefnum. „Dökkur bjór er lystugri en ljós. Fólk sem er vangæft í meltingarfærum ætti að vara sig á að drekka kaldan bjór óhóflega með mat; og helst ekki drekka bjór án þess að borða eitthvað með honum. Það hefur sýnt sig að algengur bjór, aðeins lítillega gerjaður, er langtum hollari en ofgerjaður.“ Þá klykkir Halldór út með því að vísa í rannsókn sem hann segir afsanna þá algengu hugmynd kvenfólks „að það hætti til að hlaupa í spik af bjór“. Það gerist aðeins ef kvenfólk innbyrðir „einhver ókynstur af þessum vökva á degi hverjum“. Halldór Halldórsson Laxness, uppistandari með meiru og barnabarn Nóbelsskáldsins, hafði ekki heyrt af þessari grein afa síns þegar Morgunblaðið hafði samband en var ánægður með hana. „Ég deili þessari sýn sem þýskir vísindamenn hafa á bjórþambi og ég sakna þess líka að samfélagið hafi værð til að fjalla um áfengismál,“ segir hann og bætir við að fólk sé hrætt við umræðuna þar sem miklar upphrópanir séu áberandi. „Og við hikum ekki við að segja fólki að láta af áfengisdrykkju þegar við eigum heimsmet í notkun þunglyndislyfja.“ Umræða Grein Halldórs Laxness í Velvakanda Morgunblaðsins árið 1977. Alltaf bjór með hádegismatnum á Gljúfrasteini Dóri, eins og hann er jafnan kallaður, segir að afi sinn hafi verið sjálfum sér samkvæmur. „Það voru dannaðir siðir á þeirra heimili. Þar var drukkið ákveðið þýskt sætvín með ákveðnum mat og fleira í þeim dúr. Afi minn drakk alltaf svona um það bil einn þriðja af litlum bjór með hádegismatnum. Svo var restin geymd inni í ísskáp og lokað fyrir flöskuna þar til daginn eftir.“ Sjálfur hefur Dóri fylgt sömu gildum og afi hans gerði og jafnvel tekið þau skrefi lengra en hann hefur um árabil flutt inn náttúruvín og boðað ágæti þeirra. „Ég held að það sé rétt leið til að neyta áfengis og röng. Ég held að núverandi kerfi ýti undir röngu leiðina. Það er ekkert vit í því að vera þurr fimm daga í viku en drekka 60 bjóra um helgar. Ég kalla bara eftir meiri stillingu.“ Halldór Halldórsson Laxness Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Halldór Laxness og nautnalyfið bjór Liverpool jafnaði tíu ára met United Lærði að meta styrktarþjálfun eftir veikindi Salka Sól tekin af dagskrá Rásar 2 LeBron og Doncic langatkvæðamestir Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Vara við stórhríð á morgun Óvæntar vinsældir í netheimum Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Aukið aðhald óháð Kerecis Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ „Það er engin heppni í skák" Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Halldór Laxness og nautnalyfið bjór Liverpool jafnaði tíu ára met United Lærði að meta styrktarþjálfun eftir veikindi Salka Sól tekin af dagskrá Rásar 2 LeBron og Doncic langatkvæðamestir Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 21 milljarðs gjaldþrot Play Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Vara við stórhríð á morgun Óvæntar vinsældir í netheimum Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Aukið aðhald óháð Kerecis Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ „Það er engin heppni í skák" Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article