Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrjár helstu greinar iðnaðar skiluðu miklu

Read Full Article →

Skattspor íslensks iðnaðar, vítt skilgreint, var 564 milljarðar króna á árinu 2024 samkvæmt útreikningum Reykjavík Economics. Stækkaði það frá árinu 2023, en þá nam það 549 milljörðum króna á verðlagi ársins 2024. Skattspor íslensks iðnaðar, þröngt skilgreint, var 247 milljarðar króna árið 2024 og jókst það einnig á milli ára en það var 228 milljarðar króna árið 2023 á verðlagi ársins 2024. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI), en Reykjavík Economics mat skattaleg áhrif iðnaðar árið 2024 fyrir samtökin. Reykjavík Economics reiknaði einnig út skattsporið fyrir helstu greinar iðnaðarins. Atvinnugreinaflokkun ÍSAT2008 var nýtt við greininguna og iðnaðurinn flokkaður í byggingariðnað og mannvirkjagerð, tækni- og hugverkaiðnað og framleiðsluiðnað. Heildarskattspor tækni- og hugverkaiðnaðar nam 186 milljörðum króna og þröngt skattspor 93 milljörðum króna árið 2024. Skattspor greinarinnar stækkar á milli ára en árið 2023 nam heildarskattspor greinarinnar 176 milljörðum króna og þröngt skilgreint skattspor 82 milljörðum króna á verðlagi ársins 2024. Útflutningstekjur greinarinnar hafa verið í miklum vexti á síðustu árum og er hún nú, eins og Ingólfur benti á, ein af fjórum meginstoðum útflutnings íslenska hagkerfisins. Var vægi hennar í heildar útflutningstekjum 16% á árinu 2024. Heildarskattspor byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar nam 188 milljörðum króna árið 2024, en þröngt skattspor greinarinnar var 83 milljarðar króna. Jókst skattspor greinarinnar á báða mælikvarða á milli ára. Á verðlagi ársins 2024 nam heildar skattspor greinarinnar 177 milljörðum króna árið 2023 og þröngt skilgreint skattspor greinarinnar 77 milljörðum króna á verðlagi ársins 2024. Heildarskattspor framleiðsluiðnaðar var svo 190 milljarðar króna árið 2024 og þröngt skattspor 71 milljarður króna. Þessi flokkur iðnaðar samanstendur að mestu af orkusæknum iðnaði. Lækkaði heildarskattspor greinarinnar frá árinu 2023 þegar það nam 196 milljörðum króna á verðlagi ársins 2024. Þröngt skilgreint skattspor greinarinnar jókst hins vegar á milli ára, en það var 69 milljarðar króna árið 2023 á verðlagi ársins 2024. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article