Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nærri 600 milljarða skattspor iðnaðarins

Read Full Article →

Skattspor íslensks iðnaðar, vítt skilgreint, var 564 milljarðar króna á árinu 2024 samkvæmt útreikningum Reykjavík Economics. Stækkaði það frá árinu 2023 en þá nam það 549 milljörðum króna á verðlagi ársins 2024. Skattspor íslensks iðnaðar, þröngt skilgreint, var 247 milljarðar króna árið 2024 og jókst það einnig á milli ára en það var 228 milljarðar króna árið 2023 á verðlagi ársins 2024. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) en Reykjavík Economics mat skattaleg áhrif iðnaðar árið 2024 fyrir samtökin. Iðnaður leggi mikið til atvinnusköpunar hér á landi og í því sambandi sé skattspor hennar með tilliti til vinnuaflstengdra skattgreiðslna hátt, eða 212 milljarðar króna árið 2024. Ekki einungis starfi mikill fjöldi fólks í greininni heldur séu laun í greininni einnig há og yfir meðallaunum í hagkerfinu. Það endurspegli háa framleiðni vinnuafls í greinum iðnaðar. Í útreikningum Reykjavík Economics eru metin bæði þröng og víð skattaleg áhrif. Skattaleg áhrif taka til allra skatta og gjalda sem fyrirtæki í iðnaðinum greiða á viðkomandi ári. Þröngt skattspor samanstendur af tekjuskatti fyrirtækja, tryggingagjaldi, tekjuskatti og útsvari launþega ásamt mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð og viðbótarlífeyrissparnað. Vítt skattspor er þröngt skattspor að viðbættum útskatti virðisaukaskatts og fasteignasköttum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article